EN

8. ágúst 2003

Ársbæklingur á leið til áskrifenda

Ársbæklingur Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir starfsárið 2003 - 2004 er kominn út. Bæklingurinn verður borinn út til áskrifenda ásamt svarseðli vegna endurnýjunar í kringum helgina 9. og 10. ágúst. Áskrifendur geta haft samband við skrifstofu SÍ +++ef þeir hafa þegar gert upp hug sinn og vilja halda áskrift sinni áfram óbreyttri. Við hvetjum alla til þess að ganga frá endurnýjun sinni sem fyrst því þann 1. september fellur forkaupsrétturinn úr gildi og almenn sala hefst. Ársbæklinginn geta áhugasamir nálgast á skriftstofu hljómsveitarinnar í Háskólabíói eða hringt og beðið um að fá hann sendan heim. Verkefni starfsársins ásamt upplysingum um verð og fleira má finna á síðunni Miðasala / Tónleikaárið 03 - 04