EN

2. september 2003

Vengerov veikist - tónleikar falla niður

Vegna veikinda fiðlusnillingsins Maxim Vengerov, falla Viðhafnartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem áttu að fara fram fimmtudaginn 4. september, því miður niður. Miðarnir á tónleikana fást endurgreiddir í miðasölu Sinfóníuhljómsveitar Íslands.+++ Þetta eru gríðarleg vonbrigði fyrir alla, bæði þá sem keypt hafa miða og hljómsveitina sjálfa, því eftirvænting fyrir tónleikana var mikil. Því miður er lítið við þessu að gera en vonir standa til að Vengerov muni koma til tónleikahalds með hljómsveitinni síðar á þessu ári en það verður auglýst síðar.