EN

20. nóvember 2003

Afmælistónleikar í Langholtskirkju

Hátíðatónleikar Kórs Langholtskirkju í tilefni 50 ára afmælis kórsins verða í Langholtskirkju fimmtudagskvöldið 20. nóvember kl. 19.30 og laugardaginn 22. nóvember kl. 14. 130 manna afmæliskór syngur óratoríuna Messías eftir Handel ásamt einsöngvurum og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Miðaverð er kr. 3.000 en kr. 2.500 fyrir eldri borgara og skólafólk.Miðasala er hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands í síma 545 2500 eða í Langholtskirkju í síma 520 1300. Hljómsveitarstjóri er Jón Stefánsson.