EN

8. ágúst 2005

Nýtt tónleikaár framundan

Áskrifendur SÍ eiga núna næstu daga von á glaðningi um bréfalúguna. Glæsilegur ársbæklingur verður borinn út dagana 9. og 10. ágúst ásamt svarseðlum og unslögum til endursendingar. Líkast til munu margir reka upp stór augu þegar þeir sjá anddyri Háskólabíós en her manns hefur unnið hörðum höndum að endurbótum og lagfæringum á húsnæðinu. Það er von okkar að þessar breytingar geri tónleikakvöldin enn ánægjulegri fyrir tónleikagesti. Yfirlit yfir starfsárið er að finna á þessari síðu!