EN

13. september 2005

Haldið í tónleikaferð á Snæfellsnes miðvikudag og fimmtudag

Sinfóníuhljómsveit Íslands leggur land undir fót í vikunni og heldur tvenna tónleika á Snæfellsnesi. Þá fyrri á Ólafsvík, miðvikudaginn 14. september klukkan 20.00 og þá seinna degi síðar, fimmtudaginn 15. september í Stykkishólmi og hefjast þeir klukkan 19.30. Á þessum tónleikum mun hornleikarinn Stefán Jón Bernharðsson leika einleik, en hljómasveitarstjórinn Bernharður Wilkinson er faðir hans. Fleiri fjölskyldumeðlimir verða á sviðinu þessi kvöld því móðir Stefáns, Ágústa Jónsdóttir er fiðluleikari í hljómsveitinni. +++ Efnisskráin er eftirfarandi: Mikhail Glinka: Rusla & Ludmina, forl. Richard Strauss: Hornkonsert nr. 1 Bela Bartok: Rúmenskir dansar Alexander Borodin: Polovtsian Dansar Aram Khachaturian: Mascerade svíta Tónleikarnir á Ólafsvík verða haldnir í Félagsheimilinu á Klifi en á Stykkishólmi fara þeir fram í Stykkishólmskirkju. Miðasala verður við innganginn.