EN

4. október 2005

Kvikmyndir eftir Chaplin og Hitchcock við undirleik Sinfóníuhljómsveitarinnar

Framundan eru “bíódagar" hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Tvær stórkostlegar þöglar kvikmyndir verða sýndar í Háskólabíói við undirleik hljómsveitarinnar. Myndirnar eru annars vegar City Lights, eftir Charlie Chaplin og The Lodger eftir Alfred Hitchcock. Þeim, sem framvísa námsmannaskírteinum í miðasölu er boðið að kaupa miða á mynd Hitchcocks á 1450 krónur. Kvikmyndatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands hafa frá upphafi vakið gríðarlega athygli enda ekki á hverjum degi sem hægt er að sjá meistarstykki hvíta tjaldsins við undirleik heillar Sinfóníuhljómsveitar. Miðasalan á netinu sefur aldrei!