EN

7. janúar 2008

Tónleikaferð til Ísafjarðar

Fimmtudaginn 24. janúar nk. heldur Sinfóníuhljómsveitin tónleika á Ísafirði. Langt er um liðið síðan hljómsveitin spilaði síðast á Vestfjörðum en tilefnið að þessu sinni er 60 ára afmæli Tónlistarskólans, en tónlistarlíf er sem kunnugt er afar blómlegt á Ísafirði og nágrenni. Það sést best á því hvað þátttaka heimamanna er mikil á tónleikunum. Anna Áslaug Ragnarsdóttir leikur einleik í píanókonserti eftir Chopin, hátíðarkór tónlistarskólans flytur Gloriu Poulencs með hljómsveitinni og nýtt verk, sinfonietta eftir Jónas Tómasson, verður á efnisskránni. Miðasala er hafin hér á síðunni, og einnig er hægt að hringja í síma 545 2500 og tryggja sér miða á þennan viðburð.