14. mars 2008
Maxímús Músíkús í heimsókn
Næstu tónleikar í Tónsprotaröðinni verða engum líkir. Þar verður fagnað útkomu bókarinnar Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina eftir Hallfríði Ólafsdóttur og Þórarinn Má Baldursson. Bókin segir frá ævintýrum lítillar músar sem villist inn á æfingu hjá Sinfóníuhljómsveit og heillast af þeirri tónaveröld sem þar ríkir. Á tónleikunum mun Valur Freyr Einarsson leikari lesa söguna og hljómsveitin búa til viðeigandi leikhljóð og leika síðan þau tónverk sem koma við sögu í bókinni, þeirra á meðal Bolero eftir Ravel og fyrsta þáttinn í fimmtu sinfóníu Beethovens. Trúðurinn Barbara lítur líka við, og heyrst hefur að Maxímús sjálfur muni kíkja í heimsókn. Á undan tónleikunum mun hin rómaða Þjóðlagasveit Tónlistarskóla Akraness leika nokkur lög í anddyri Háskólabíós. Tónleikarnir verða laugardaginn 29. mars og hefjast kl. 14. Hér er hægt að kaupa miða, og hér má fræðast meira um Maxímús, bókina og tónlistina. Myndin af Maxímúsi hér að ofan er eftir Þórarin Má Baldursson.