EN

4. desember 2008

SÍ tilnefnd til Grammy verðlauna

Sinfóníuhljómsveit Íslands og Rumon Gamba, aðalstjórnandi hljómsveitarinnar, eru tilnefnd til hinna virtu Grammy-verðlauna. Um er að ræða verðlaun sem veitt eru fyrir bestu frammistöðu hljómsveitar og hljómsveitarstjóra á hljómplötu. Tilnefninguna fær hljómsveitin fyrir geisladisk sinn með verkum eftir franska tónskáldið Vincent d´Indy, sem breska Chandos-útgáfan gaf út fyrr á þessu ári. Ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands eru Konunglega skoska hljómsveitin, Sinfóníuhljómsveit Chicagoborgar, og Holllywood Studio sinfóníuhljómsveitin tilnefndar í þessum flokki. Vefur Grammy verðlaunanna