EN

2. september 2010

Uppselt á Pál Óskar - Aukatónleikar

palli_listiMiðasala á tónleika Páls Óskars með Sinfóníuhljómsveit Íslands, sem verða haldnir í Háskólabíói í nóvember, hófst í gær. Seldist upp á tvenna tónleika á fyrsta degi og símkerfi Sinfóníunnar lá niðri um stund vegna of mikils álags.

Vegna gífurlegrar eftirspurnar hefur verið ákveðið að bæta við tvennum aukatónleikum, miðvikudaginn 3. nóvember kl. 20 og laugardaginn 6. nóvember kl. 17.  Á tónleikunum mun Páll Óskar líta yfir feril sinn og syngur mörg af sínum vinsælustu lögum, m.a. Allt fyrir ástina, Þú komst við hjartað í mér, Ég er eins og ég er og fjölmörg fleiri.