EN

  • palli_og_sinfo_listi
  • palli_og_sinfo2_listi

7. nóvember 2010

Páll Óskar & Sinfó - frábærar viðtökur

Sinfóníuhljómsveit Íslands þakkar hreint ótrúlegar viðtökur síðustu daga og Palla fyrir frábært samstarf. Uppselt var á ferna tónleika Páls Óskars og Sinfóníuhljómsveitar Íslands enda er þar á ferð einn ástsælasti poppari þjóðarinnar. Páll Óskar og Sinfóníuhljómsveitin hafa svo sannarlega staðið undir væntingum og vel það. Tónleikarnir hafa hlotið frábærara viðtökur hjá áheyrendum og gagnrýnandi Morgunblaðsins var hæstánægður, gaf tónleikunum fjórar og hálfa stjörnu af fimm mögulegum.

Páll Óskar og Sinfó munu endurtaka tónleikana í Hörpu á næsta starfsári, þannig að þeir sem misstu af þeim (og hinir sem vilja koma aftur) geta farið að hlakka til.

Stöð 2 tók viðtal við Pál Óskar fyrir tónleikana.

Sjá viðtal.