EN

28. ágúst 2019

Ný hjólaljós og hjólastígur við Hörpu

Umferðarljós fyrir hjólandi umferð hafa verið sett upp á gatnamótum við Hörpu og tengjast þau hjólastíg meðfram Sæbrautinni og þvera Faxagötu. Jafnframt voru gerðar breytingar á stýringu akandi umferðar um gatnamót Sæbrautar, Kalkofnsvegar og Faxagötu.

Til að bæta umferðaröryggi er bílaumferð sem kemur um Sæbraut að Hörpu núna stýrt með umferðarljósunum en var áður beint á sérstaka beygjuafrein sem hleypti umferð framhjá ljósunum. Þegar bílaumferð á Sæbraut fær grænt ljós, blikkar gult viðvörunarljós samtímis og grænt ljós logar fyrir umferð hjólandi. Þannig er athygli ökumanna vakin á að þeir megi eiga von á hjólandi vegfarendum og um leið hvattir til að sýna varkárni. Fyrirkomulag má sjá á skýringarmynd hér fyrir neðan:

Þegar hjólandi umferð fær rautt ljós og grænt ljós logar fyrir bílaumferð á Sæbraut, verður stefnuörin inn Faxagötu einnig græn. Sjá á skýringarmynd hér fyrir neðan:

Mögulega hægari umferð fyrir tónleika í Hörpu

Á annatímum eins og fyrir tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu er mögulegt að bílaröð geti myndast við ljósin austur Sæbraut. Tónleikagestir hljómsveitarinnar, sem í gegnum árin hafa fengið forgang framhjá ljósunum gætu fundið fyrir þessu. Tónleikagestir eru því eindregið hvattir til að vera tímanlega á ferðinni.

Hér má sjá myndband sem Reykjavíkurborg lét gera og útskýrir breytinguna:

 Allar nánari upplýsingar má hér nálgast á vef Reykjavíkurborg.