EN

3. september 2017

Óperan Brothers á Listahátíð 2018

Óperan Brothers eftir Daníel Bjarnason verður sett á svið í Eldborg á Listahátíð í Reykjavík 2018. Íslenska óperan setur sýninguna upp í samstarfi við Den Jyske Opera og Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Óperan sem fjallar um stríð, bræðralag og ástir, er byggt á samnefndri kvikmynd eftir Susanne Bier sem margir þekkja og textinn er eftir Kerstin Perski.

Brothers, sem er fyrsta ópera tónskáldsins, var frumsýnd 16. ágúst síðastliðinn í Musikhuset í Árósum og fékk frábærar viðtökur áheyrenda og einróma lof gagnrýnenda. Leikstjóri uppfærslunnar er Kasper Holten sem lét nýverið af störfum sem óperustjóri Covent Garden, en um er að ræða sömu uppfærslu en flytjendur verða að langmestu leyti íslenskir listamenn.

„Það er vel við hæfi að á 100 ára fullveldisafmæli Íslands sé sett upp glæsilegt íslenskt/danskt samstarfsverkefni sem þetta, enda stór viðburður í okkar tónlistarsögu. Þarna er um magnað verk og stórbrotna uppfærslu að ræða sem verður virkilega spennandi að geta boðið Íslenskum áhorfendum að njóta næsta vor“ segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri Íslensku óperunnar.