EN

25. mars 2019

Prufuspil í Ungsveitinni í vikunni

Í þessari viku og næstu standa yfir prufuspil og umspil um sæti í Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hljómsveitarskóli Ungsveitarinnar gefur tónlistarnemendum innsýn og vettvang til að kynnast hinum sinfóníska heimi af eigin raun. Prufuspilin eru liður í því þeirri þjálfun þar sem líkt er eftir aðstæðum prufuspila hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Á næsta starfsári fagnar Ungsveitin 10 ára afmælisári sínu og verður verkefnið glæsilegt, Sinfónía nr. 9 eftir Ludwig van Beethoven undir stjórn Daniel Raiskins.