EN

21. ágúst 2025

Sinfó í sundi

Klassíkin okkar fer fram í tíunda sinn í Eldborg í Hörpu föstudaginn 29. ágúst kl. 20:00 í samvinnu við RÚV.

Af því tilefni bjóða margar sundlaugar víða um land upp á viðburðinn Sinfó í sundi þar sem sent verður beint út frá tónleikunum á sundstöðum.

Klassíkin okkar ber að þessu sinni yfirskriftina – Söngur lífsins. Á tónleikunum flytja margir af okkar fremstu söngvurum tónlist sem tengist hinum ýmsu athöfnum okkar og viðburðum á lífsleiðinni; frá tregafullum kvöldsöngvum til glaðværra gamansöngva.

Einsöngvarar eru Dísella Lárusdóttir, Eggert Reginn Kjartansson, GDRN, Ólafur Kjartan Sigurðarson
Pálmi Gunnarsson, Rebekka Blöndal og Valdimar Guðmundsson. Söngsveitin Fílharmónía mun einnig taka lagið. Það er Bjarni Frímann Bjarnason sem heldur um tónsprotann og kynnar eru Halla Oddný Magnúsdóttir og Guðni Tómasson.

Klassíkin okkar mun svífa yfir vötnum í laugum landsins og meðal sundstaða sem taka þátt í gleðinni eru:

Sundlaug Seltjarnarness
Kópavogssundlaug
Salalaug í Kópavogi
Álftaneslaug í Garðabæ
Ásvallalaug í Hafnarfirði
Stapalaug í Reykjanesbæ
Sundmiðstöðin/Vatnaveröld í Reykjanesbæ
Sundlaug Hveragerðis
Sundlaug Vestmanneyja
Sundlaug Egilsstaða
Sundlaug Seyðisfjarðar
Stefánslaug Neskaupsstað
Sundlaug Eskifjarðar
Sundlaugin á Raufarhöfn í Norðurþingi
Sundlaugin á Húsavík í Norðurþingi
Sundlaugin Grenivík
Sundlaug Akureyrar
Sundlaugin Ólafsfirði í Fjallabyggð
Sundlaug Sauðárkróks
Sundlaugin Varmahlíð
Sundlaugin á Hofsósi
Sundlaugin á Blönduósi
Laugarneslaug í Krossholti á Barðaströnd
Sundlaug Hólmavíkur
Krossneslaug á Ströndum
Sundlaugin á Hvammstanga
Hreppslaug í Skorradal
Sundlaugin í Borgarnesi
Sundlaugin í Stykkishólmi
Sundlaugin í Grundarfirði
Sundlaugin í Ólafsvík
Sundlaugin Jaðarsbökkum Akranesi