Staða leiðara í klarínettudeild
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir til umsóknar stöðu leiðara í klarínettudeild.
Hæfnispróf fer fram 23. september 2025 í Hörpu, Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk.
Ekki er þörf á að fylla út umsóknareyðublað, nægilegt er að sækja um með því að senda tölvupóst, ásamt ferilskrá og afritum af prófskírteinum, til mannauðsstjóra á tölvupóstfangið starf@sinfonia.is.
Einleiksverk
1. Mozart klarínettkonsert í A-dúr, K. 622, 1. þáttur framsaga
2. Debussy Premiere Rhapsodie
Hljómsveitarpartar
Hljómsveitarpartar og nánari upplýsingar um hljómsveitarstaði verða sendar þátttakendum á rafrænu formi þegar umsókn hefur verið samþykkt, ásamt nánari upplýsingum um stað- og tímasetningu hæfnisprófs.
Um starfið
Um er að ræða 100% starf leiðara klarínettudeildar hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands en samtals eru þrjú stöðugildi í deildinni. Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Aðilar utan EES-svæðis þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem háð er samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.
Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 87. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir nemenda á öllum aldri hljómsveitina heim. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Eva Ollikainen hefur verið aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar frá árinu 2020. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is, (sími 891 9141).