EN

28. apríl 2025

Þrennir tónleikar á Suðurlandi

30. apríl - 2. maí

Sinfóníuhljómsveit Íslands bregður undir sig betri fætinum og heldur þrenna tónleika á Suðurlandi 30. apríl - 2. maí næstkomandi. Leikið verður á Höfn í Hornafirði, Vík í Mýrdal og Selfossi. 

Aðgangur er ókeypis og eru öll hjartanlega velkomin!

Nánar um tónleikana:
30. apríl kl. 19:00 – Höfn í Hornafirði
1. maí kl. 19:00 –  Vík í Mýrdal
2. maí kl. 19:00 – Selfoss

Sinfóníuhljómsveit Íslands
Eva Ollikainen – Hljómsveitarstjóri
Jóhann Kristinsson – Einsöngvari
Kórar á svæðinu taka þátt í flutningum

Efnisskrá:
Giuseppe Verdi: Luisa Miller, forleikur
Giuseppe Verdi: Di Provenza úr La Traviata
Atli Heimir Sveinsson: Kvæðið um fuglana
Sigvaldi Kaldalóns: Ave María
Richard Wagner: Aría Wolframs úr Tannhäuser
Gioachino Rossini: Largo al factotum úr Rakaranum í Sevilla
Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 5 í c-moll, Örlagasinfónían

Um tónsprotann heldur Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands og með í för er Jóhann Kristinsson barítónsöngvari, sem er einn af okkar fremstu söngvurum af yngri kynslóðinni. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir söng sinn — til að mynda Íslensku tónlistarverðlaunin 2024 sem söngvari ársins. Jóhann er búsettur í Þýskalandi, kemur reglulega fram í mörgum af helstu tónleikahúsum Evrópu og hefur sungið með mörgum af fremstu sinfóníuhljómsveitum álfunnar. Það er því sérstaklega ánægjulegt að heimsækja Höfn, Vík og Selfoss með glæsilega tónleikadagskrá sem hentar allri fjölskyldunni.