EN

9. febrúar 2024

Staða leiðara í slagverksdeild

Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2024

Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu leiðara í slagverksdeild. 

Skylduverk:

Sneriltromma:   -Århus etude nr. 9 - Bent Lylloff.
                               -Nr.1 úr twelve studies for snare drum - Jacques Delécluse.

Sílófónn:             -A la Goldenberg úr Xylo-fun - Nick Woud.

Marimba:           -Mexican dance nr.2 - Gordon Stout.

Hljómsveitarpartar

Hljómsveitarpartar og nánari upplýsingar um hljómsveitarstaði verða sendar þátttakendum á rafrænu formi þegar umsókn hefur verið samþykkt, ásamt nánari upplýsingum um stað- og tímasetningu hæfnisprófs.

Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2024. Umsóknir, ásamt ferilskrá og fylgiskjölum, skulu berast til mannauðsstjóra með tölvupósti á starf@sinfonia.is.

Um starfið
Um er að ræða 100% starfshlutfall leiðara í slagverksdeild hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands en samtals eru þrír slagverksleikarar í deildinni auk pákuleikara. Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna haustið 2024. Aðilar utan EES svæðis þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem háð er samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.

Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 87. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir nemenda á öllum aldri hljómsveitina heim. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Eva Ollikainen hefur verið aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar frá árinu 2020. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is, (sími 891 9141).