EN

16. febrúar 2024

Tvær lausar tutti stöður í annarri fiðlu

Umsóknarfrestur er til 2. apríl 2024

Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir til umsóknar tvær lausar tutti stöður í annarri fiðlu.

Hæfnispróf fer fram 30. maí 2024 í Hörpu.

Einleiksverk:

  1. Mozart fiðlukonsert (1. kafli með kadensu) nr. 3 í G-dúr, nr. 4 í D-dúr eða nr. 5 í A-dúr .
  2. Rómantískur fiðlukonsert að eigin vali (1. kafli með kadensu).

Hljómsveitarpartar

Hljómsveitarpartar og nánari upplýsingar um hljómsveitarstaði verða sendar þátttakendum á rafrænu formi þegar umsókn hefur verið samþykkt, ásamt nánari upplýsingum um stað- og tímasetningu hæfnisprófs.

Umsóknarfrestur er til 2. apríl 2024. Ekki er þörf á að fylla út umsóknareyðublað, nægilegt er að sækja um með því að senda tölvupóst, ásamt ferilskrá og fylgiskjölum, til mannauðsstjóra á tölvupóstfangið starf@sinfonia.is.

Um starfið
Um er að ræða tvö 100% störf tutti fiðluleikara í annarri fiðlu hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands en samtals eru þrettán fiðluleikarar í deildinni. Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna haustið 2024. Aðilar utan EES svæðis þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem háð er samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.

Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 87. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir nemenda á öllum aldri hljómsveitina heim. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Eva Ollikainen hefur verið aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar frá árinu 2020. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is, (sími 891 9141).