EN

13. febrúar 2025

Tutti staða í fyrstu fiðlu

Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir til umsóknar tutti stöðu í fyrstu fiðlu.

Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir til umsóknar tutti stöðu í fyrstu fiðlu.

Hæfnispróf fer fram 3. júní 2025 í Hörpu, Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 22. apríl nk.

Ekki er þörf á að fylla út umsóknareyðublað, nægilegt er að sækja um með því að senda tölvupóst, ásamt ferilskrá og afritum af prófskírteinum, til mannauðsstjóra á tölvupóstfangið starf@sinfonia.is.

Einleiksverk

1. Fyrsti kafli með kadensu úr einum af eftirtöldum konsertum:
Mozart Fiðlukonsert í A-dúr K-219
Mozart Fiðlukonsert í D-dúr K-218
Mozart Fiðlukonsert í G-dúr K-216


2. Fyrsti kafli með kadensu úr einum af eftirtöldum rómantískum konsertum:
P. Tchaikovsky Fiðlukonsert í D-dúr op.35
J. Brahms Fiðlukonsert í D-dúr op. 77
J. Sibelius Fiðlukonsert í d-moll op. 47
A. Dvorák Fiðlukonsert í a-moll op. 53
L. Beethoven Fiðlukonsert í D-dúr op. 61

Hljómsveitarpartar
Hljómsveitarpartar og nánari upplýsingar um hljómsveitarstaði verða sendar þátttakendum á rafrænu formi þegar umsókn hefur verið samþykkt, ásamt nánari upplýsingum um stað- og tímasetningu hæfnisprófs.

Um starfið
Um er að ræða eitt 100% starf tutti fiðluleikara hjá Sinfóníuhljómsveitar Íslands en samtals eru 16,5 stöðugildi í deildinni. Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Aðilar utan EES-svæðis þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem háð er samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.

Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 87. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir nemenda á öllum aldri hljómsveitina heim. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Eva Ollikainen hefur verið aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar frá árinu 2020. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is, (sími 891 9141).