EN

14. janúar 2019

Ungir einleikarar stíga á svið

Fimmtudaginn 17. janúar stíga á svið í Eldborg sigurvegarar úr keppninni Ungir einleikarar sem Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur fyrir í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Einleikararnir og einsöngsöngvararnir Harpa Ósk Björnsdóttir, Guðbjartur Hákonarson, Hjörtur Páll Eggertsson Sellókonsert og Silja Elsabet Brynjarsdóttir báru sigur úr býtum í kepninni ár og koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á þessum einstöku tónleikum.

Námsmenn geta tryggt sér miða á skólakortsverði fyrir 1.700 kr. í miðasölu Hörpu.