EN

19. janúar 2023

Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2023 – viltu taka þátt?

Prufuspil verða haldin í Hörpu 27., 28. og 29. mars nk.

Prufuspil fyrir þátttöku í Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2023 verða haldin í Hörpu 27., 28., og 29. mars næstkomandi. Umsókn um þátttöku í prufuspilinu er opin öllum tónlistarnemendum sem lokið hafa miðprófi.  Hér má nálgast nánari upplýsingar fyrir umsækjendur. 

Hljómsveitarnámskeið Ungsveitarinnar 2023 stendur frá mánudeginum 11. september til sunnudagsins 24. september. Verkefni Ungsveitarinnar að þessu sinni verður Draumórasinfónían eftir Berlioz undir stjórn Nathanaël Iselin. Nathanaël er staðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar og hefur átt farsælt samstarf með hljómsveitinni í fjölbreyttum verkefnum af ýmsum toga. Hljómsveitarnámskeiðinu lýkur með glæsilegum stórtónleikum í Eldborg, Hörpu, sunnudaginn 24. september kl. 17:00.

Umsóknareyðublað fyrir Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2023 er að finna hér. Það þarf að fylla út og senda í tölvupósti á Hjördísi Ástráðssdóttur fræðslustjóra á hjordis.astradsdottir@sinfonia.is. Umsækjendur fá staðfestingu á að umsókn hafi verið móttekin ásamt prufuspilspörtum. Prufuspilstímar verða sendir öllum umsækjendum eftir að umsóknarfrestur er runninn út. Allir nemendur þurfa að sækja um til að eiga möguleika á þátttöku, einnig þeir sem hafa leikið áður með Ungsveitinni. Umsóknarfrestur er til miðnættis 5. mars nk.

Ungsveitin er hugsuð sem vettvangur fyrir samspil tónlistarnemenda sem lokið hafa miðprófi. Henni er ætlað að gefa nemendum tækifæri á að kynnast starfsumhverfi atvinnuhljóðfæraleikara, auk þess sem nemendur fá að starfa með hljóðfæraleikurum og hljómsveitarstjórum á heimsmælikvarða.

Sækja upplýsingar fyrir umsækjendur

Sækja umsóknareyðublað