EN

1. febrúar 2019

Yrkja V - auglýst eftir umsóknum

Samstarfsverkefni Tónverkamiðstöðvar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Tónverkamiðstöð og Sinfóníuhljómsveit Íslands kalla nú eftir umsóknum frá tónskáldum um þátttöku í fimmta hluta YRKJU. Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2019.

YRKJA er starfsþróunarverkefni Tónverkamiðstöðvar og veitir tónskáldum sem stödd eru á fyrri hluta starfsferils síns, tækifæri til að vinna með úrvali íslenskra listastofnana.  

Að þessu sinni bjóða Tónverkamiðstöð og Sinfóníuhljómsveit Íslands tveimur tónskáldum að verja tímabilinu frá 10. apríl til 31. janúar 2020 í YRKJU undir handleiðslu Önnu Þorvaldsdóttur, staðartónskálds Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Tónskáldin fá innsýn í innra starf hljómsveitarinnar, þróa færni sína í að semja verk fyrir sinfóníuhljómsveit og að endingu verður verkið flutt á sérstökum tónleikum á Myrkum músíkdögum 2020. Tónskáldin munu jafnframt fá tækifæri til að vinna náið með hljóðfæraleikurum í sérstakri Tónskáldastofu.

NÁNAR UM UMSÓKNINA

 

Um Yrkju

Markmið Yrkju er að veita hagnýta reynslu sem getur orðið hornsteinn í ferli tónskáldsins. Verkefnið er fyrir tónskáld á fyrri hluta starfsferilsins og brúar bilið milli háskólanáms og starfsferils með því að undirbúa tónskáld fyrir vinnu í faglegu umhverfi hjá stærri hljómsveitum, hátíðum og öðrum listastofnunum hérlendis og erlendis. Í YRKJU fær tónskáldið tækifæri til að þróa hæfileika sína og listrænan metnað, öðlast starfsreynslu og mynda tengsl í tónlistargeiranum.

Áhersla er lögð á ferli listsköpunar og munu þátttakendur í Yrkju verða hvattir til að þróa hugmyndir sínar og aðferðir við sköpun. Við viljum hlúa að starfsferli tónskáldanna og mun því verkefnið fela í sér ráðgjafaviðtöl í Tónverkamiðstöð um starfsferil tónskáldins og mun miðstöðin skipuleggja fund þar sem tónskáldin í verkefninu hittast og deila reynslu sinni af verkefninu og skiptast á hugmyndum.