Bertrand Chamayou staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2026/27
Franski píanóleikarinn Bertrand Chamayou verður nýr staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands á næsta starfsári, 2026-2027. Chamayou er einn mest skapandi píanóleikari samtímans, þekktur fyrir túlkun sína sem er í senn kraftmikil, hugmyndarík og einstaklega falleg. Hann er leiðandi í flutningi franskrar tónlistar, til dæmis á verkum eftir Ravel, Liszt og Messiaen. Chamayou býr jafnframt yfir djúpri ástríðu fyrir nýrri tónlist og hefur unnið með tónskáldum á borð við Pierre Boulez, Henri Dutilleux, Thomas Adès og fleirum. Chamayou leikur reglulega í virtustu tónleikasölum heims og hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir upptökur sínar, meðal annars á öllum píanóverkum Ravels.
Bertrand Chamayou mun leika á alls fernum tónleikum á dagskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands á starfárinu. Hann kemur fram sem einleikari á tvennum tónleikum með hljómsveitinni undir stjórn Barböru Hannigan, nýjum aðalhljómsveitarstjóra og listrænum stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Þar mun Chamayou flytja tvö glæsileg verk fyrir píanó og hljómsveit; píanókonsert Ravels í G-dúr og Prómeþeif, ljóð eldsins, eftir Skrjabín. Auk þess leikur hann á einleikstónleikum og kammertónleikum með Hannigan en þau hafa lengi unnið saman að sköpun tónlistar, bæði með tónleikahaldi og útgáfu.
„Það er mjög gleðilegt fyrir okkur hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands að Bertrand Chamayou verði staðarlistamaður okkar,“ segir Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. „Á undanförnum árum höfum við dáðst að spilamennsku og dirfsku Bertrands þegar kemur að því að setja saman efnisskrár og hljóðritanir. Hann er í senn ljóðrænn og kröftugur tónlistarmaður með skarpa sýn á alla þá tónlist sem hann leikur. Það verður frábært að fá Bertrand í heimsókn og heyra hann leika á tónleikum í vetur.“
„Mig hefur lengi dreymt um að koma til Íslands.“ segir Bertrand Chamayou.
„Landslagið – sem ég hef hingað til aðeins kynnst af ljósmyndum – og einstök menning landsins hafa alltaf heillað mig. Hvernig er betra að láta Íslandsdrauminn rætast en sem staðarlistamaður? Það hlutverk skapar víðfemann leikvöll sköpunar og uppgötvana. Í þessari fyrstu heimsókn mun ég fá tækifæri til að draga upp eins konar sjálfsmynd sem til verður með ólíkumsjónarhornum: tónlist Frakklands, heimalands míns, tónlist Ravels og Messiaens, andleg upphafning Messiaens og Skrjabíns, skapandi kraftur Johns Zorn og George Crumb, rómantík Mendelssohns og Schuberts í samtali við hljóðheim samtímans, og ekki síst listrænt samstarf mitt við Barböru Hannigan, sem hefur um árabil verið mér óþrjótandi uppspretta innblásturs. Ég hlakka innilega til að kynnast íslenskum áheyrendum í gegnum þessi fjölbreyttu verkefni, hvert öðru meira spennandi.“
- Eldri frétt
- Næsta frétt
