Hljómsveitastjóraakademía 2026-2027
Opið fyrir umsóknir 20. maí - 1. júní 2026
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir Hljómsveitarstjóraakademíu sína í ágúst næstkomandi.
Umsóknina á að senda á Hjördísi Ástráðsdóttur, fræðslustjóra hljómsveitarinnar á hjordis@sinfonia.is.
Allir þurfa að sækja um þátttöku, líka þeir sem voru með á síðasta námskeiði.
Opið er fyrir umsóknir frá 20. maí 2026 til miðnættis 1. júní 2026. Ekki er tekið við umsóknum eftir þann tíma.
Tíu þátttakendum verður boðið að taka þátt í Akademíunni og af þeim verður 5 boðið að stjórna á tónleikum í lok námskeiðsins.
Akademían verður starfrækt frá 17.08.26-19.08.26 og er undir stjórn Daníels Bjarnasonar.
Umsækjendur fá svar fyrir 10. júní nk. hvort þeir komist að í Akademíunni.
Í umsókn þarf eftirfarandi að koma fram: Tónlistarnám, aðalhljóðfæri, aldur og reynsla af hljómsveitar- og/eða kórastarfi, netfang og farsími.
Hér má kynna sér dagskrá Hljómsveitarstjóraakademíunnar 2026-27.
