EN

20. september 2019

Eliza Reid verndari Ungsveitarinnar

Eliza Reid forsetafrú hefur þegið boð Sinfóníuhljómsveitar Íslands um að gerast verndari Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands en sveitin fagnar tíu ára afmæli sínu á þessu ári. Af því tilefni heimsótti Eliza Reid Ungsveitina á æfingu í Hörpu þar sem sveitin æfði Níundu sinfóníu Beethovens sem hún leikur á tíu ára afmælistónleikum sunnudaginn 22. september í Eldborg. 

Það er mér sérstök ánægja að vera verndari Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands á 10 ára afmæli hennar. Mikilvægt er að reyndir tónlistarmenn miðli af þekkingu sinni og reynslu og því er Ungsveitin marktækur þáttur í starfsemi Sinfóníuhljómsveitarinnar. Hundruð ungmenna hafa á liðnum árum hlotið þjálfun innan Ungsveitarinnar og einhver þeirra eru nú komin til liðs við Sinfóníuhljómsveitina sem fullgildir hljóðfæraleikarar, 

segir Eliza Reid forsetafrú.

Stuðningur Elizu er dýrmæt viðurkenning og hvatning til okkar frábæra unga listafólks sem með elju og dugnaði tekur þátt í starfsemi Ungsveitarinnar. Ungsveitin er ekki eingöngu mikilvæg fyrir þá sem taka þátt hverju sinni og fyrir framtíð tónlistarlífs á Íslandi. Ungsveitin er líka fyrirmynd og hvatning til alls ungs fólks, “ 

segir Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar.


Í tilefni af tíu ára afmæli Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands verður efnt til glæsilegra hátíðartónleika í Hörpusunnudaginn 22. september þar sem Níunda sinfónía Beethovens verður flutt af Ungsveitinni ásamt úrvalsliði ungra einsöngvara og æskukóra. Nánar má lesa um afmælistónleikana 22. september hér

Ungsveitin hefur vakið verðskuldaða athygli en hún hlaut viðurkenninguna Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2016. Markmið Sinfóníuhljómsveitar Íslands með hljómsveitarskóla Ungsveitarinnar er að gefa tónlistarnemendum innsýn og vettvang til að kynnast hinum sinfóníska heimi af eigin raun og njóta þjálfunar og leiðsagnar framúrskarandi hljóðfæraleikara og hljómsveitarstjóra eins og um atvinnumennsku væri að ræða. Tónleikar Ungsveitarinnar hafa vakið eftirtekt fyrir samstilltan flutning og magnaða túlkun.

Það verður mikilfenglegt að hlýða á yfir 280 ungmenni á sunnudaginn taka höndum saman um að flytja Níundu sinfóníu Beethovens, og ekki síst lokaþáttinn, sjálfan Óðinn til gleðinnar. Einsöngvarar eru Bryndís Guðjónsdóttir, Agnes Thorsteins, Alexander Jarl Þorsteinsson og Jóhann Kristinsson. Kórinn telur um um 200 manns og er settur saman af Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, Graduale Nobili, Flensborgarkórnum, Kór Flensborgarskólans, Kór tónlistardeildar LHÍ ásamt Söngsveitinni Fílharmóníu.

Rússneski hljómsveitarstjórinn Daniel Raiskin heldur um taumana en hann hefur mikla reynslu af því að starfa með ungmennum að metnaðarfullum hljómsveitarverkefnum. Raiskin hefur tvívegis áður stjórnað Ungsveit SÍ og auk þess stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands með afbragðs árangri.