EN

19. október 2006

Kristallinn í annað sinn í Listasafni Íslands

Nýja kammartónleikaröðin Kristallinn, heldur göngu sinni áfram á laugardaginn. Tónleikarnir hefjast klukkan 17 og að þessu sinni eru það þau Brjánn Ingason, Emil Friðfinnsson, Hildigunnur Halldórsdóttir, Laufey Sigurðardóttir, Martin Frewer, Svava Bernharðsdóttir, Bryndís Björgvinsdóttir og Dean Ferrel sem leika verk eftir Johann Matthias Sperger, Wolfgang Amadeus Mozart og Franz Danzi. Efnisskrá tónleikanna er hægt að lesa á hér á heimasíðunni, þar er einnig hægt að kaupa miða á tónleikana.