EN

23. apríl 2019

Skólatónleikar í beinu streymi

Grunnskólatónleikum hljómsveitarinnar um Tobba túbu verður streymt í beinni útsendingu til grunnskóla um allt land miðvikudaginn 24. apríl kl. 11:00. Á tónleikunum leikur hljómsveitin hið sívinsæla tónlistarævintýri um Tobba túbu undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar. Einleikari á tónleikunum er Nimrod Ron og sögumaður er Halldóra Geirharðsdóttir.

Hér má lesa nánar um tónleikana.