Staða hornleikara
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir til umsóknar stöðu almenns hornleikara í horndeild.
Hæfnispróf fer fram 21. febrúar 2026 í Hörpu.
Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2026.
Umsóknir
Ekki er þörf á að fylla út umsóknareyðublað, nægilegt er að sækja um með því að senda tölvupóst, ásamt ferilskrá og prófskírteinum, til mannauðsstjóra á tölvupóstfangið starf@sinfonia.is.
Einleiksverk
Hermann Neuling – Bagatelle.1st mov. from Mozart K. 417 eða 1st. mov. from Mozart K. 495.
Athugið að þátttakendur velja á milli Mozart K.417 og Mozart K.495.
Hljómsveitarpartar
Hljómsveitarparta, þar sem hljómsveitarstaðir hafa verið tilgreindir sérstaklega, má nálgast hér.
Um starfið
Um er að ræða 100% starf almenns hornleikara í horndeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands en samtals eru fimm hornleikarar í deildinni. Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Aðilar utan EES-svæðis þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem háð er samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.
Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 88. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir nemenda á öllum aldri hljómsveitina heim. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Eva Ollikainen hefur verið aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar frá árinu 2020. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is, (sími 891 9141).
