EN

6. mars 2023

Staða leiðara í básúnudeild

Umsóknarfrestur er til 20. mars 2023

Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu leiðara í básúnudeild.

Hæfnispróf fer fram 10. maí 2023 í Hörpu.

Einleiksverk:
F. David: Concertino fyrir básúnu.

Hljómsveitarpartar úr eftirfarandi verkum:
Berlioz: Symphonie fantastique.
Berlioz: Hungarian March.
Bernstein: Symphonic Dances úr West Side Story.
Brahms: Sinfónía nr. 1.
Brahms: Sinfonía nr. 2.
P. Hindemith: Symphonic metamorphoses.
Holst: The Planets.
Mahler: Sinfónía nr 3.
Mozart: Requiem, Tuba Mirum 2. básúna.
Mozart: Requiem, Kyrie, complete alto part, helst á alt-básúnu.
Ravel: Bolero solo.
Rossini: William Tell forleikur.
Rossini. La Gazza Ladra forleikur.
Saint-Saëns: Sinfónía nr. 3.
R. Strauss: Ein Heldenleben.
R. Strauss: Also Sprach Zarathustra.
R. Strauss: Til Eulenspigel.
R. Schumann: Sinfónía nr. 3.
Stravinsky: Eldfuglinn, Infernal Dance.
Wagner: Valkyrjureiðin.
Wagner: Tannhäuser forleikur.
J. Williams: Star Wars svíta.

Hljómsveitarpartar og nánari upplýsingar um hljómsveitarstaði verða sendar þátttakendum á rafrænu formi þegar umsókn hefur verið samþykkt, ásamt nánari upplýsingum um stað- og tímasetningu hæfnisprófs.

Umsóknarfrestur er til 20. mars 2023. Umsóknir, ásamt ferilskrá og fylgiskjölum, skulu berast til Dagrúnar Hálfdánardóttur mannauðsstjóra, með tölvupósti á starf@sinfonia.is.

Um starfið:
Um er að ræða 100% starfshlutfall sem leiðari í básúnudeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands en samtals eru þrír básúnuleikarar í deildinni. Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna haustið 2023. Aðilar utan EES svæðis þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem háð er samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.

Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 87. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir skólabarna á öllum aldri hljómsveitina heim. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Eva Ollikainen hefur verið aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar frá árinu 2020. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is, (sími 891 9141).