EN

21. apríl 2021

Uppskerutónleikar Ung-Yrkju föstudaginn 23. apríl

Yrkja er samstarfsverkefni Tónverkamiðstöðvar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands og miðar að því að búa ný tónskáld undir starf í faglegu umhverfi hjá hljómsveitum, hátíðum og öðrum listastofnunum.

Ung-Yrkja er nýtt verkefni innan vébanda Yrkju og á föstudaginn 23. apríl næstkomandi verða uppskerutónleikar verkefnisins þegar þrjú glæný tónverk eftir þau Hjalta Nordal, Ingibjörgu Elsu Turchi og Katrínu Helgu Ólafsdóttur (K.Óla) munu hljóma í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á hádegistóneikum í Eldborg í Hörpu. Bjarni Frímann Bjarnason stjórnar hljómsveitinni en mentor verkefnisins er Anna Þorvaldsdóttir, staðartónskáld hljómsveitarinnar.

Tónskáldin hafa starfað með hljómsveitinni og Önnu síðan vorið 2020 og fengið þannig einstakt tækifæri til að þróa færni sína og aðferðir við í að skrifa fyrir sinfóníuhljómsveit, öðlast innsýn í innra starf sveitarinnar og vinna náið með hljóð­færaleikurunum. Á tónleikunum mun Elísabet Indra Ragnarsdóttir ræða við tónskáldin um verkin og tónsmíðaferlið. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis en sækja þarf miða á tónleikana hér á vef hljómsveitarinnar.

Tónleikarnir voru á dagskrá Myrkra músíkdaga 2021 en hátíðinni var aflýst vegna kórónuveirufaraldurs og verður næst haldin í janúar 2022.