Lausar stöður fyrsta og annars konsertmeistara.
Hæfnispróf fer fram 30. janúar 2026 í Hörpu, Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2025.
Hæfnispróf fer fram 30. janúar 2026 í Hörpu, Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2025.
Ekki þarf að fylla út sérstakt umsóknareyðublað; nægilegt er að sækja um með því að senda tölvupóst, ásamt ferilskrá og afritum af viðeigandi prófskírteinum, til mannauðsstjóra á tölvupóstfangið starf@sinfonia.is. Nema annað komi fram í umsókn verður litið svo á að umsækjendur sæki um báðar stöðurnar.
Einleiksverk
- Mozart: Fiðlukonsert nr. 3., 4. eða 5. (frjálst val) — Fyrsti og annar þáttur með kadensu.
- Fyrsti þáttur með kadensu úr fiðlukonsert eftir einn af eftirfarandi tónskáldum: Beethoven, Brahms, Sibelius, Dvořák eða Tchaikovsky.
Hljómsveitar- og mögulegir kammermúsíkpartar
Hljómsveitar- og kammermúsíkpartar verða sendir þátttakendum á rafrænu formi þegar umsókn hefur verið samþykkt, ásamt nánari upplýsingum um stað og tímasetningu hæfnisprófsins. Í þriðju umferð hæfnisprófs gæti verið óskað eftir að þátttakendur leiki kammermúsík með hljóðfæraleikurum úr hljómsveitinni.
Um störfin
Um er að ræða tvö störf: Annars vegar starf fyrsta konsertmeistara í 100% stöðu — með tilkomu þess munu tveir slíkir starfa hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands — og hins vegar 100% starf annars konsertmeistara.
Konsertmeistari ber ábyrgð á faglegri og listrænni framþróun hljómsveitarinnar. Hann er leiðari allrar hljómsveitarinnar og ber ábyrgð gagnvart hljómsveitarstjóra á að framkoma og samspil einkennist af aga og einbeitingu. Konsertmeistari tekur m.a. þátt í kynningarstarfi fyrir hljómsveitina auk þess sem hann sinnir öðrum verkefnum í samráði við stjórnendur. Þá skal konsertmeistari undirbúa og leika tilfallandi einleiksstrófur.
Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Einstaklingar utan EES-svæðis þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem er háð samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.
Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 88. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir nemenda á öllum aldri hljómsveitina heim. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Eva Ollikainen hefur verið aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar frá árinu 2020. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.
Nánari upplýsingar má finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is.