EN

16. nóvember 2016

Úrslit í einleikarakeppni Sinfóníunnar og Listaháskólans

Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands

Laugardaginn 12. nóvember fór fram árleg einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands. Alls tóku 12 ungir einleikarar þátt  og stunda þeir allir söng- eða hljóðfæranám á bakkalárstigi.

Fjórir urðu hlutskarpastir í keppninni að þessu sinni og koma fram á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg þann 12. janúar. Það eru þær Auður Edda Erlendsdóttir, klarínettuleikari, Herdís Mjöll Guðmundsdóttir, fiðluleikari, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, sellóleikari og Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópran. Hljómsveitarstjóri er Petri Sakari.

Dómnefnd var skipuð þeim Unu Sveinbjarnardóttur, 3. konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem var formaður nefndarinnar, Sigurði Bjarka Gunnarssyni, sellóleikara,  Signýju Sæmundsdóttur, söngkonu, Símoni H. Ívarssyni, gítarleikara, Einari Jónssyni, trompetleikara og Daða Kolbeinssyni, óbóleikara.

Myndin með fréttinni er af Heiðdísi Hönnu Sigurðardóttur, en hún kom fram á tónleikunum Ungir einleikarar með Sinfóníuhljómsveit Íslands í janúar 2016.

Nánar um tónleikana