EN

13. janúar 2022

Valkyrju Wagners aflýst

Vegna heimsfaraldursins og afleiðinga hans reyndist óhjákvæmilegt að aflýsa fyrirhuguðum sýningum á Valkyrjunni eftir Wagner, uppfærslu Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Íslensku óperunnar í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík sem fara átti fram í Hörpu 24. og 26. febrúar 2022. Staða heimsfaraldursins bæði hér heima og erlendis gerir það að verkum að ekki er mögulegt að setja óperuna á svið enda um mjög fjölmenna og umfangsmikla uppfærslu að ræða þar sem  listamenn koma víða að. 

Allir aðgöngumiðar verða endurgreiddir að fullu og endurgreiðast sjálfkrafa hafi þeir verið greiddir með greiðslukorti. Ef miðar voru greiddir með öðrum hætti, eða ef einhverjar spurningar vakna, vinsamlega hafið samband við miðasölu Hörpu á netfangið midasala@harpa.is

Upphaflega var Valkyrjan á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík vorið 2020 og var henni frestað í tvígang vegna COVID. Vonir standa þó enn til að af þessu metnaðarfulla verkefni geti orðið á næstu árum og mun það þá verða tilkynnt sérstaklega.  Logo-stor