Maxi fer á fjöll
Í nýju tónlistarævintýri um músina ástsælu, Maxímús Músíkús, er íslensk tónlist í forgrunni, allt frá þjóðlögum að samtímatónlist. Á lifandi og áhugaverðan hátt magnar tónlistin upp spennandi sögur af álfum og tröllum og upplifun Maxa af eldgosi í jöklaferð. Maxi ferðast ekki einn því að tvær gestamýs, Viva og Moto, sem komu í tösku erlends hljómsveitarstjóra, eru með í för. Maxi hefur því enn eina ferðina eignast nýja vini sem fylgja honum á vit ævintýranna. Hann gleðst yfir því hvað hann sé heppin mús, því að „þar sem tónlist er, þar eru allir glaðir.“
Bækurnar um Maxa hafa notið mikilla vinsælda, hlotið fjölda veiðurkenninga og komið út á mörgum tungumálum. Sögumaður í nýja ævintýrinu um Maxa er Unnur Eggertsdóttir en hún tók þátt í frumflutningi verksins undir stjórn Daníels Bjarnasonar í Los Angeles við mikið lof viðstaddra. Verndari verkefnisins er Vladimir Ashkenazy, aðalheiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Verkið var pantað af Sinfóníuhljómsveit Íslands og Fílharmóníusveit Los Angeles sem frumflutti verkið á Reykjavíkur-hátíð sinni í Walt Disney-tónlistarhöllinni.
-
Efnisskrá
Tryggvi M. Baldvinsson Hátíðargjall fyrir einstaka mús
Jórunn Viðar úr Ólafi Liljurós
Anna Þorvaldsdóttir úr Hrími
Haukur Tómasson úr Storku
Jón Ásgeirsson Tröllaslagur
Gunnsteinn Ólafsson Þýtur í stráum
Bára Grímsdóttir Laumufarþegarnir
Daníel Bjarnason úr Collider
Hallfríður Ólafsdóttir Lagið hans Maxa
-
Hljómsveitarstjóri
-
Sögumaður
-
Saga og myndir
Hallfríður Ólafsdóttir og
Þórarinn Már Baldursson