Tónleikar á Menningarnótt - frítt inn
Sinfóníuhljómsveit Íslands býður á tvenna tónleika á vígsludegi Hörpu á Menningarnótt. Frítt er inn á tónleikana og allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Hægt verður að sækja aðgöngumiða í miðasölu Hörpu á tónleikadegi. Byrjað er að afhenda miða tveimur tímum fyrir tónleika.
Kl. 14:00 - Eldborg
Maxímús Músikús heimsækir hljómsveitina
Ævintýrið um Maxímús Músíkús, sem villist óvart á æfingu hjá sinfóníuhljómsveit í glænýju tónlistarhúsi, hefur farið sigurför um heiminn á síðustu árum. Bókin með ævintýrinu hefur m.a. verið gefin út á ensku, þýsku og kóresku. Á tónleikunum hljómar tónlist úr ýmsum áttum, m.a. Hátíðargjall eftir Aaron Copland, Bolero eftir Maurice Ravel og Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns. Valur Freyr Einarsson er sögumaður og hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinsson.
Kl. 17:00 - Eldborg
Klassík fyrir alla
Á tónleikunum verða leikin fjögur vinsæl og aðgengileg verk eftir klassíska meistara: Flautukonsert eftir Mozart og þrjú lífleg hljómsveitarverk eftir Tsjajkovskíj, Prokofiev og Glinka.
Einleikari er Stefán Ragnar Höskuldsson, en hann er einn þeirra íslensku tónlistarmanna sem hvað lengst hafa náð í hinum alþjóðlega tónlistarheimi. Hann hefur verið flautuleikari við hina víðfrægu hljómsveit Metropolitan-óperunnar í New York frá árinu 2004. Hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinsson.
Efnisská:
Mikhaíl Glinka: Rúslan og Lúdmíla, forleikur
W.A. Mozart: Flautukonsert í D-dúr
Sergei Prokofíev: Montag og Kapúlett, úr Rómeó og Júlíu
Pjotr Tsjajkovskíj: Vals úr Þyrnirós
Bernharður Wilkinsson hljómsveitarstjóri
Stefán Ragnar Höskuldsson einleikari