EN

4. nóvember 2024

Guðni Tómasson ráðinn framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur ráðið Guðna Tómasson í stöðu framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá og með 6. nóvember 2024. Ráðið er í starfið til fjögurra ára í senn.

Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit stofnuð árið 1950. Hún hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin býður upp á fjölbreytta dagskrá og heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Auk þess heldur hljómsveitin úti metnaðarfullu barna-og fræðslustarfi og býður árlega þúsundum nemenda á skólatónleika.

Guðni hefur starfað við fjölmiðlun á menningarsviðinu frá því laust eftir aldamót, einkum við miðlun tónlistar- og menningarlífs hjá Ríkisútvarpinu, nú síðast sem menningarritstjóri. Hann var stjórnarformaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands á árunum 2010-2014, sat í stjórn Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss á árunum 2019-2023 og var einnig formaður listráðs Hörpu 2022-2024. Hann var ráðgjafi mennta- og menningarmálaráðherra í menningarmálum 2012-2013 og formaður starfshóps um ritun menningarstefnu stjórnvalda sem samþykkt var 2013. Jafnframt hefur hann tekið að sér fjölmörg önnur ráðgjafar- og trúnaðarstörf í menningarlífinu.

Guðni er fæddur árið 1976, hann er með meistaragráðu í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst og meistaragráðu í listasögu frá St. Andrews háskólanum í Skotlandi. Hann tekur við starfinu af Láru Sóleyju Jóhannsdóttur sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra frá árinu 2019.

„Fyrir hönd stjórnar býð ég Guðna Tómasson velkominn til starfa og hlakka til samstarfs við hann. Sinfóníuhljómsveit Íslands er í fremstu röð og þar er ákaflega öflugt starf sem landsmenn taka vel eftir. Undanfarin ár hefur hljómsveitin vaxið og hún hefur alla burði til þess að eflast enn frekar í samstarfi við framúrskarandi listamenn. Áralöng reynsla Guðna af menningu mun sannarlega nýtast hljómsveitinni vel á komandi árum. Á sama tíma þökkum við Láru Sóleyju Jóhannsdóttur fyrir hennar framlag en hún hefur lagt mikið af mörkum til þess árangurs sem náðst hefur á undanförnum árum,“ segir Sigurður Hannesson, stjórnarformaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands.