EN

4. desember 2025

Staða túbuleikara

Hæfnispróf – Staða túbuleikara

Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir eftir umsóknum um stöðu túbuleikara.

Fyrsta umferð (forumferð) hæfnisprófs fer fram með myndbandsupptöku. Umsóknarfrestur er til 9. febrúar 2026 og niðurstöður fyrstu umferðar verða kynntar þátttakendum 14. febrúar 2026.

Síðari umferðir hæfnisprófs fara fram í Hörpu, Reykjavík, 20. apríl 2026.

Umsóknir skulu sendar með tölvupósti til mannauðsstjóra á starf@sinfonia.is og skulu innihalda:
• Ferilskrá
• Afrit af viðeigandi prófskírteinum
• Hlekk á myndbandsupptöku fyrir fyrstu umferð


Í fyrstu umferð (forumferð á myndbandi) skulu umsækjendur leika eftirfarandi:

1. Blazevich: Solo Etude
2. Berlioz: Symphonie Fantastique (both excerpts)
3. Wagner: Die Walküre
Nótur má nálgast með því að smella hér. 

Síðari umferð í Hörpu, Reykjavík, 20. apríl 2026.

Einleiksverk:
1. Ralph Vaughan Williams - Tuba Concerto (1st movement with cadenza).
2. Blazevich: Solo Etude

Hljómsveitarpartar:

  1. Berlioz: Hungarian March
  2. Berlioz: Symphonie Fantastique
  3. Bruckner: Symphony No. 4 (F-Tuba)
  4. Bruckner: Symphony No. 7
  5. Hindemith: Symphonic Metamorphosis
  6. Mahler: Symphony No. 5, Scherzo
  7. Mussorgsky: Pictures at an Exhibition, Bydlo
  8. Prokofiev: Symphony No. 5
  9. Respighi: Fontane di Roma
  10. Stravinsky: Petrushka
  11. Wagner: Lohengrin
  12. Wagner: Die Meistersinger von Nürnberg
  13. Wagner: Das Rheingold
  14. Wagner: Die Walküre

Nótur má nálgast með því að smella hér.


Kröfur til upptöku

• Flutningur skal vera án undirleiks og í hljómsveitarstillingu.
• Myndbandið skal tekið upp í einni samfelldri upptöku, í framangreindri röð og vera óklippt.
• Umsækjandi skal sjást greinilega allan tímann.
• Stutt hlé til að stilla hljóðfæri eða laga búnað eru leyfð, en myndavélin skal vera í gangi allan tíman.
• Myndbandsupptaka í snjallsíma er leyfileg.
• Hljóðgæði skulu vera skýr og góð. Ef ytri hljóðnemi er notaður skal staðsetja hann rétt.
• Upptakan skal vera í láréttri mynd, þannig að bæði hljóðfæraleikari og hljóðfærið sjáist allan tímann.


Leiðbeiningar um innsendingu á myndbandsupptöku

• Hlaðið myndbandinu upp á YouTube sem „óskráðu “ (unlisted) myndbandi.

• Afritið hlekkinn í umsókn.

• Aðrar aðferðir við innsendingu verða ekki teknar gildar.


Um starfið
Um er að ræða 100% starf leiðara. Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Aðilar utan EES-svæðis þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem háð er samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.


Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 88. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir nemenda á öllum aldri hljómsveitina heim. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Eva Ollikainen er aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar en frá haustinu 2026 mun Barbara Hannigan taka við. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is, (sími 891 9141).