EN

9. maí 2023

Útför Páls Pampichler Pálssonar

Páll Pampichler Páls­son hljóm­sveit­ar­stjóri og tón­skáld lést 10. febrúar sl. í fæðingarborg sinni Graz í Austurríki á 95. ald­ursári. Útför Páls fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, þriðjudaginn 9. maí kl 13:00.

Sinfóníuhljómsveit Íslands er einstaklega þakklát fyrir framlag Páls til hljómsveitarinnar og þátt hans í uppbyggingu tónlistarlífs hér á landi. Páll gegndi stöðu trompetleikara hjá hljómsveitinni í um tíu ár, allt frá stofnun hennar árið 1950. Hann stjórnaði hljómsveitinni fyrst árið 1957 og síðan reglulega í fjörutíu ár, síðast á Vínartónleikum sveitarinnar árið 1997.

Páll var frumkvöðull í íslensku tónlistarlífi og boðberi íslenskrar tónlistar erlendis. Eftir hann liggja um 140 tónverk, ýmist skrifuð fyrir sinfóníuhljómsveit, kór, blásarasveit eða kammerhópa. Fyrir tónverk hans og útsetningar, kennslu og hljómsveitar– og kórstjórn getum við seint fullþakkað.

Sinfóníuhljómsveit Íslands minnist Páls Pampichler Pálssonar með djúpu þakklæti fyrir framlag hans og vottar fjölskyldu hans og vinum samúð.