EN

14. janúar 2020

Concurrence hlýtur frábæra dóma heimspressunnar

Nýjasta plata Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Concurrence, hefur fengið frábæra dóma og var valin á árslista margra helstu blaða og tímarita heims. The New York Times valdi diskinn einn af 25 bestu klassísku útgáfum ársins og bandaríska útvarpsstöðin NPR hefur sömuleiðis valið hann sem einn af tíu bestu útgáfum ársins. Í umsögninni segir meðal annars: „Eyríkið Ísland er, þrátt fyrir smæð sína, risi á sviði klassískrar tónlistar.“ Tónlistartímaritið Second Inversion valdi plötuna einnig sem eina af tíu bestu útgáfum ársins og sagði enn fremur að „sumt af því dáðasta og frumlegasta sem gert er í nýrri tónlist samtímans“ komi frá Íslandi. MusicWeb International gaf plötunni frábæra dóma: „Ekkert hrós er nógu mikið fyrir allt það framúrskarandi tónlistarfólki sem kom að Concurrence.“ Ástralski tónlistarvefurinn Limelight gaf plötunni fimm stjörnur og sagði að „platan Recurrence var góð, Concurrence er enn betri og við vonum að meira sé á leiðinni.“ Þriðji diskurinn í röðinni er væntanlegur í lok þessa árs.

Á disknum Concurrence má finna fjögur hljómsveitarverk í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands eftir tónskáldin Önnu Þorvaldsdóttur, Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur Markan, Hauk Tómasson og Pál Ragnar Pálsson. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason, aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar, og einleikarar eru Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari og Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari. Upptökustjórn var í höndum Daniel Shores og Dan Merceruio en bandaríska útgáfufyrirtækið Sono Luminus stóð að útgáfunni.

Diskurinn er fáanlegur í plötuverslununm, Epal í Hörpu og völdum verslunum Eymundsson.

Á disknum má meðal annars heyra Metacosmos eftir
Önnu Þorvaldsdóttur staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Concurrence er annar diskurinn af þremur sem bandaríska útgáfufyrirtækið Sono Luminus gefur út með Sinfóníuhljómsveitinni. Fyrsti diskurinn, Recurrence, kom út í fyrra og fékk einnig frábærar viðtökur og var valinn plata ársins í sigildri tónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2019. Þriðji diskurinn í röðinni kemur út árið 2020 og inniheldur verk eftir Þuríði Jónsdóttur, Magnús Blöndal Jóhannsson, Veronique Vöku og Daníel Bjarnason.

Recurrence kom út 2018 og var valin plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum ári síðar

Öll verkin sem má heyra á Concurrence hafa verið flutt í Eldborg á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands og voru tekin upp í Hörpu á árunum 2018 og 2019. Metacosmos eftir Önnu Þorvaldsdóttur, staðartónskáld hljómsveitarinnar, var pantað af New York Philharmonic sem frumflutti það í apríl 2018 undir stjórn Esa-Pekka Salonen. Quake eftir Pál Ragnar Pálsson var samið að beiðni Elbphilharmonie-hljómsveitarinnar og Fílharmóníusveitar Los Angeles og tileinkað sellóleikaranum Sæunni Þorsteinsdóttur sem frumflutti konsertinn ásamt fyrrnefndu hljómsveitinni í Hamborg.

Píanókonsert nr. 2 eftir Hauk Tómasson var saminn að beiðni Elbphilharmonie-hljómsveitar norðurþýska útvarpsins og Fílharmóníusveitar Los Angeles og var frumfluttur í Elbphilharmonie af Víkingi Heiðari Ólafssyni undir stjórn Esa-Pekka Salonen. Á diskinum má einnig finna verkið Oceans eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur en hún átti einnig verkið Aequora á fyrsta diski útgáfunnar.