Fréttasafn
Fréttasafn
Fyrirsagnalisti
Hugi Guðmundsson verður staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Hugi Guðmundsson hefur verið útnefndur staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands og mun hann gegna stöðunni starfsárin 2026-27 og 2027-28.
Lesa meira
Fræðsluverkefni í samstarfi við Listasafns Íslands
Sinfóníuhljómsveit Íslands og Listasafns Íslands vinna í sameiningu að stóru fræðsluverkefni sem byggir á þjóðsagnaarfinum og ber heitið Stattu og vertu að steini. Hljómsveitin sendur fyrir skólatónleikum í Eldborg, Hörpu undir þessu heiti og Listasafn Íslands hefur sett upp samnefnda sýningu í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Lesa meira
Ungsveit SÍ 2026 – viltu taka þátt?
Hljómsveitarnámskeið Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2026 stendur frá mánudeginum 7. september til sunnudagsins 20. september 2026. Verkefni Ungsveitarinnar er Sheherazade eftir Rimskíj-Korsakov undir stjórn Nathanaël Iselin.
Lesa meira
Sigurvegarar í keppni ungra einleikara 2026
Sigurvegarar keppninnar Ungir einleikarar 2026 hafa nú verið valdir og að þessu sinni báru fjórir tónlistarnemar sigur úr býtum. Þau eru Halldóra Ósk Helgadóttir söngkona, Lilja Hákonardóttir flautuleikari, Matthildur Traustadóttir fiðluleikari og Mariann Rähni píanóleikari. Þau stíga á svið sem einleikarar með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Eldborg föstudaginn 24. apríl 2026.
Lesa meira
Einstakar jólastundir
Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur fyrir einstökum jólastundum í Hörpu 16. og 17. desember. Gestir á jólastundum eru nemendur úr vinaskólum hljómsveitarinnar; Klettaskóla, Arnarskóla og leikskólanum Sólborg ásamt nemendum af táknmálssviði Hlíðaskóla og börnum og ungmennum í Blindrafélaginu.
Lesa meira
Jólarúta Sinfóníunnar á verður á ferðinni 19. og 20. desember
Sinfóníuhljómsveit Íslands er í sannkölluðu hátíðarskapi um þessar mundir. Hljómsveitin fer á flakk um höfuðborgarsvæðið fimmtudaginn 18. desember og föstudaginn 19. desember. Á fernum tónleikum víðs vegar um bæinn mun hljómsveitin leika fallega jólatónlist undir stjórn Elias Brown.
Lesa meira
Staða túbuleikara
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir eftir umsóknum um stöðu túbuleikara.
Umsóknarfrestur er til 9. febrúar 2026 og niðurstöður fyrstu umferðar verða kynntar þátttakendum 14. febrúar 2026.
Staða aðstoðarnótnavarðar
Sinfóníuhljómsveit Íslands óskar eftir að ráða aðstoðarnótnavörð í fullt starf. Leitað er að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir drifkrafti og þjónustulund og góðum skipulags- og samskiptaeiginleikum.
Lesa meira
Staða almenns kontrabassaleikara
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir eftir umsóknum um stöðu almenns kontrabassaleikara.
Umsóknarfrestur er til 26. febrúar 2026
Lesa meira
Jólagjöf sem hljómar vel
Með gjafakorti Sinfóníunnar geta tónlistarunnendur á öllum aldri valið hvaða tónleika sem er úr fjölbreyttri dagskrá hljómsveitarinnar. Hvernig hljóma til dæmis hátíðlegir Vínartónleikar, E.T. bíótónleikar, Mahler 8, fjölskyldutónleikar, Elgar og Eldfuglinn, Nærmynd af Hildi Guðnadóttur eða hvað sem hæfir áhuga og smekk. Gjafakortið er tímalaust og rennur ekki út. Gefðu lifandi tónlist um jólin!
Lesa meira- Nýrri fréttir
- Eldri fréttir