Fréttasafn
Fréttasafn: 2026 (Síða 2)
Fyrirsagnalisti
tvær stöður almenns fiðluleikara í fyrstu fiðlu
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir til umsóknar tvær stöður almenns fiðluleikara í fyrstu fiðlu.
Hæfnispróf fer fram 2. júní 2026 í Hörpu, Reykjavík.
Kynningarupptökur á verkum íslenskra tónskálda
Dagana 2. og 3. febrúar sl. stóð Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir kynningarupptökum á nokkrum tónverkum íslenskra tónskálda sem hvorki hafa verið flutt á tónleikum né hljóðrituð áður.
Lesa meira
Hugi Guðmundsson verður staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Hugi Guðmundsson hefur verið útnefndur staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands og mun hann gegna stöðunni starfsárin 2026-27 og 2027-28.
Lesa meira
Fræðsluverkefni í samstarfi við Listasafns Íslands
Sinfóníuhljómsveit Íslands og Listasafns Íslands vinna í sameiningu að stóru fræðsluverkefni sem byggir á þjóðsagnaarfinum og ber heitið Stattu og vertu að steini. Hljómsveitin sendur fyrir skólatónleikum í Eldborg, Hörpu undir þessu heiti og Listasafn Íslands hefur sett upp samnefnda sýningu í Safnahúsinu við Hverfisgötu.
Lesa meira
Ungsveit SÍ 2026 – viltu taka þátt?
Hljómsveitarnámskeið Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2026 stendur frá mánudeginum 7. september til sunnudagsins 20. september 2026. Verkefni Ungsveitarinnar er Sheherazade eftir Rimskíj-Korsakov undir stjórn Nathanaël Iselin.
Lesa meira
Sigurvegarar í keppni ungra einleikara 2026
Sigurvegarar keppninnar Ungir einleikarar 2026 hafa nú verið valdir og að þessu sinni báru fjórir tónlistarnemar sigur úr býtum. Þau eru Halldóra Ósk Helgadóttir söngkona, Lilja Hákonardóttir flautuleikari, Matthildur Traustadóttir fiðluleikari og Mariann Rähni píanóleikari. Þau stíga á svið sem einleikarar með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum í Eldborg föstudaginn 24. apríl 2026.
Lesa meira- Nýrri fréttir
- Eldri fréttir