EN

Fréttasafn (Síða 7)

Fyrirsagnalisti

19. janúar 2023 : Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2023 – viltu taka þátt?

Prufuspil fyrir þátttöku í Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2023 verða haldin í Hörpu 27., 28., og 29. mars næstkomandi. Umsókn um þátttöku í prufuspilinu er opin öllum tónlistarnemendum sem lokið hafa miðprófi.

Lesa meira

19. janúar 2023 : Hljómsveitarstjóra-akademía með Evu Ollikainen

Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur nú í þriðja sinn námskeið í Hljómsveitarstjóra-akademíu SÍ undir stjórn og leiðsögn Evu Ollikainen aðalhljómsveitarstjóra. Akademían er fyrst og fremst vettvangur fyrir unga og efnilega tónlistarnema sem lokið hafa miðprófi hið minnsta í hljóðfæraleik eða söng. Mikill fjöldi umsókna barst að þessu sinni og hafa 7 nýnemar verið teknir inn í Akademíuna og aðrir 5 halda áfram frá fyrra ári.

 Lesa meira 

Lesa meira

10. janúar 2023 : Þrír sigurvegarar í keppni ungra einleikar 2023

Seinni umferð Ungra einleikara 2023 lauk nú í janúar en keppnin var nú haldin í tuttugasta sinn. Ungir einleikarar er samstarfsverkefni LHÍ og Sinfóníuhljómsveitar Íslands en sigurvegarar keppninnar fá tækifæri til þess að flytja einleik á Eldborgarsviði Hörpu ásamt Sinfóníuhljómsveitinni.

Lesa meira

9. janúar 2023 : Sir Stephen Hough tekinn tali

„Ég hlakka mikið til að koma til ykkar – ég spila bæði Beethoven í janúar og Rakhmanínov í febrúar, svo spila ég einleikstónleika, les upp úr bókinni minni og spjalla – það verða allir orðnir dauðleiðir á mér í lok starfsársins!“ segir Stephen Hough af sinni alkunnu hógværð og hlær þegar veturinn framundan er færður í tal, en Hough er Listamaður í samstarfi hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands á starfsárinu.

Lesa meira 

Lesa meira

5. janúar 2023 : Eldri borgarar á lokaæfingu

Við tókum á móti liðlega 1000 eldri borgurum víðsvegar af höfuðborgarsvæðinu á lokaæfingu fyrir Vínartónleika hljómsveitarinnar. Leikin var Vínartónlist og dúettar í flutningi Dísellu Lárusdóttur og Jóhanns Kristinsonar auk þess sem dansarar stigu á svið. Frá árinu 2012 hefur eldri borgurum reglulega verið boðið á lokaæfingu fyrir tónleikana sem nýtur alltaf jafn mikilla vinsælda.

 

Lesa meira

4. janúar 2023 : Breytingar á flytjendum á Vínartónleikum 2023

Söngkonan Dísella Lárusdóttir stígur á svið á Vínartónleikum hljómsveitarinnar ásamt Jóhanni Kristinssyni. Af óviðráðanlegum orsökum getur Álfheiður Erla Guðmundsdóttir ekki komið fram eins og til stóð.

 

Lesa meira

22. desember 2022 : Opnunartímar yfir hátíðirnar

Skrifstofa Sinfóníuhljómsveitar Íslands er lokuð frá 23. desember til 2. janúar.

 

Lesa meira

14. desember 2022 : Harry Potter kvikmyndatónleikar

Í mars heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands bíótónleika þar sem kvikmyndin Harry Potter og leyniklefinn™ verður sýnd í Eldborg við lifandi tónlistarflutning hljómsveitarinnar. Alls verða fjórar sýningar; 22., 23. og 24. mars kl. 19.00 og 25. mars kl. 14.00. 

Miða á tónleikana má kaupa hér á vefnum og í miðasölu Hörpu. Hægt er að fá miðana afhenta í töfrandi gjafaumbúðum í miðasölu Hörpu – Tilvalin gjöf!

Lesa meira

7. desember 2022 : Jólastundir fyrir einstök börn

Í vikunni hélt Sinfóníuhljómsveit Íslands jólastundir fyrir einstök börn. Jólastundirnar voru fjórar talsins þar sem hljómsveitin spilaði fyrir nemendur úr Klettaskóla, Arnarskóla, Hlíðaskóla, leikskólanum Sólborg, skóladeild Laufásborgar og fyrir skjólstæðinga Blindrafélagsins.

 

 

Lesa meira

5. desember 2022 : Jólagleði Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur í sína árlegu jólaferð um borg og bý fimmtudaginn 8. desember næstkomandi. 

 

Lesa meira