Fréttasafn
2015 (Síða 4)
Fyrirsagnalisti

Íslensku tónlistarverðlaunin
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hljómsveitarinnar Skálmöld í Eldborg í nóvember 2013 voru tónlistarviðburður ársins í flokki popp- og tokktónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum sem afhent voru föstudaginn 20. febrúar.
Lesa meira
Daníel Bjarnason staðarlistamaður Sinfóníunnar
Daníel Bjarnason hefur verið ráðinn í stöðu staðarlistamanns Sinfóníuhljómsveitar Íslands og mun hann gegna margþættu hlutverki sem hljómsveitarstjóri og tónskáld ásamt því að sitja í verkefnavalsnefnd hljómsveitarinnar og stýra tónskáldastofu.
Lesa meira
Maxímús tilnenfndur til YEAH-verðlaunanna
Nýverið var tilkynnt að verkefnið um Maxímús Músíkús, sem slegið hefur í gegn hérlendis og verið sett á svið víða um heim, væri tilefnt til YEAH-verðlaunanna 2015. Þau eru veitt sem fyrir bestu tónlistarverkefni í Evrópu ætluð ungu fólki. Yfir 100 verkefni frá tuttugu Evrópulöndum sóttust eftir tilnefningu að þessu sinni en aðeins 15 hlutu tilnefningu.
Lesa meira
Þriðju tónleikunum með Eivøru bætt við
Nær uppselt er á tvenna tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands með færeysku söngkonunni Eivøru og hljómsveit hennar. Því hefur þriðju tónleikunum verið bætt við kl. 22 fimmtudaginn 26. febrúar.
Lesa meira
4.000 hetjur á skólatónleikum
Öðru sinni á starfsárinu tekur Sinfóníuhljómsveit Íslands á móti þúsundum skólabarna á sérstökum tónleikum. Að þessu sinni er tónlistin helguð hetjum og valkyrjum og á efnisskránni eru meðal annars að finna nýtt tónverk Huga Guðmundssonar um Djáknan á Myrká auk þekktari stefja úr kvikmyndum á borð við Indiana Jones og Múlan.
Lesa meira
Lausar stöður fiðluleikara
Sinfóníuhljómsveit Ísland hefur auglýst stöður leiðara í 2. fiðlu og fiðluleikara lausar til umsóknar. Hæfnispróf verða haldin í Hörpu í apríl lok.
Lesa meira
Óperan Peter Grimes á Listahátíð í Reykjavík
Óperan Peter Grimes eftir enska tónskáldið Benjamin Britten verður frumflutt á Íslandi þann 22. maí næstkomandi á Listahátíð í Reykjavík. Um er ræða umfangsmikla tónleikauppfærslu í Eldborg sem er samstarfsverkefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Íslensku óperunnar, Hörpu og Listahátíðar í Reykjavík. Tvær erlendar stórstjörnur úr heimi óperunnar syngja aðalhlutverkin, Stuart Skelton í titilhlutverkinu og Susan Gritton í hlutverki Ellen Orford.
Lesa meira
Håkan Hardenberger leikur í stað Tine Thing Helseth
ð læknisráði hefur Tine Thing Helseth þurft að aflýsa komu sinni til Íslands, en hún átti að leika einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands 5. mars nk. Það er þó lán í óláni að í stað hennar kemur sænski trompetleikarinn Håkan Hardenberger, sem er einn mesti trompetsnillingur samtímans. Hann hefur komið fram með nær öllum helstu hljómsveitum heims, meðal annars Fílharmóníuhljómsveitunum í Vínarborg, Berlín og New York, og hefur pantað ótal nýja trompetkonserta sem vakið hafa mikla athygli.
Lesa meira
Ungsveit SÍ: Hljómsveitarnámskeið 2015
Hljómsveitarnámskeið Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands stendur frá mánudeginum 7. september til sunnudagsins 4. október. Að þessu sinni verður verkefni hljómsveitarinnar sinfónía nr. 10 eftir Shostakovitsj. Prufuspil fara fram dagana 19. og 20. mars.
Lesa meira
Sibeliusar-þríleikurinn
- Nýrri fréttir
- Eldri fréttir