Fréttasafn
Fréttasafn: 2023
Fyrirsagnalisti
Annáll 2023
Sinfóníuhljómsveit Íslands lék fyrir um 90.000 gesti hér heima og erlendis á 92 fjölbreyttum og litríkum tónleikum á árinu sem er að líða.
Hápunktur ársins var tónleikaferð hljómsveitarinnar til Bretlands í apríl þar sem haldnir voru sjö tónleikar undir stjórn Evu Ollikainen aðalhljómsveitarstjóra. Einleikari í ferðinni var Stephen Hough sem er jafnan talinn í hópi virtustu og fjölhæfustu píanóleikara samtímans.
Lesa meiraAnna Þorvaldsdóttir og Sinfónían valin á topplista The New York Times
Platan ARCHORA / AIŌN með verkum Önnu Þorvaldsdóttur í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Evu Ollikainen aðalhljómsveitarstjóra SÍ var valin á lista yfir bestu klassísku plötur ársins 2023 hjá dagblaðinu The New York Times.
Lesa meiraJólalest Sinfóníunnar á ferð og flugi
Sinfóníuhljómsveit Íslands verður í hátíðarskapi í desember og heldur opna jólastund í Flóa í Hörpu í hádeginu, mánudaginn 18. desember. Þar verður flutt falleg jólatónlist sem kemur öllum í sannkallað jólaskap.
Tónleikarnir hefjast kl. 12:00 og er aðgangur ókeypis.
20% afsláttur á Harry Potter kvikmyndatónleika
Í dag býður Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á 20% afslátt af miðum á kvikmyndatónleikana Harry Potter og fanginn frá Azkaban™. Myndin er byggð á þriðju bókinni í þessum ástsæla bókaflokki og birtist hér á hvíta tjaldinu með lifandi undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Tilboðið gildir aðeins í dag og aðeins á netinu – þú getur keypt miða á tónleikana með 20% afslætti með því að smella hér.
Lesa meiraEinstakar jólastundir
Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur á einstökum jólastundum í Hörpu 11. og 12. Desember næstkomandi. Nemendur úr vinaskólum hljómsveitarinnar, Klettaskóla, Arnarskóla og leikskólanum Sólborg ásamt nemendum af táknmálssviði Hlíðaskóla og börnum og ungmennum í Blindrafélaginu eru gestir á jólastundunum.
Lesa meiraUpplifun í jólapakkann
Gjafakort Sinfóníunnar fást hér á vefnum og í miðasölu Hörpu. Þau eru tímalaus og renna ekki út.
Með gjafakortinu geta tónlistarunnendur á öllum aldri valið tónleika úr dagskrá Sinfóníunnar, t.d. hátíðlega Vínartónleika, Harry Potter kvikmyndatónleika, Mahler nr. 3 eða hvað sem hæfir áhuga og smekk. Settu upplifun í jólapakkann.
Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um gjafakortið.
Lesa meiraMinningarorð um Reyni Sigurðsson
Við minnumst Reynis Sigurðssonar sem lést 2. nóvember síðastliðinn. Reynir var einstaklega hæfileikaríkur og fjölhæfur tónlistarmaður og einstakt prúðmenni. Hann starfaði sem slagverksleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 1959, hlaut fastráðningu 1969 og lét af störfum árið 2001.
Lesa meiraUndrabarnið sem fór í uppreisn
Leila Jozefowicz hefur verið í fremstu röð fiðluleikara heimsins um árabil. Eftir að hafa skotist upp á stjörnuhimininn sem unglingur á tíunda áratugnum með helstu rómantísku glæsiverkum fiðlubókmenntanna fór hún í auknum mæli að helga sig nýrri tónlist. Í dag hefur hún frumflutt fjölmarga konserta eftir helstu tónskáld okkar tíma og veit ekkert skemmtilegra en að leyfa áheyrendum sínum að heyra eitthvað alveg nýtt.
Sinfóníukvöld í Sjónvarpinu
Upptaka frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands með píanóleikaranum Kirill Gerstein voru á dagskrá RÚV miðvikudaginn 1. nóvember. Á efnisskrá var þriðji píanókonsert Rakhmanínovs og blue cathedral eftir Jennifer Higdon. Hljómsveitarstjóri var Stéphane Denève. Tónleikarnir fóru fram fyrir fullu húsi í Eldborg 26. október síðastliðinn.
Smelltu hér til þess að horfa á tónleikana.
Nýr grænn leiðarvísir fyrir norrænar sinfóníuhljómsveitir
Út er kominn nýr grænn leiðarvísir fyrir norrænar sinfóníuhljómsveitir sem var unninn í samvinnu Sinfóníuhljómsveitar Íslands, DEOO - samtök sinfóníuhljómsveita í Danmörku, BARC Scandinavia og Bæredygtigt Kulturliv.
Lesa meira- Nýrri fréttir
- Eldri fréttir