Fréttasafn
Fréttasafn: 2023 (Síða 4)
Fyrirsagnalisti

Sinfóníuhljómsveit Íslands hlaut frábærar viðtökur í tónleikaferð sinni um Bretland
Sinfóníuhljómsveit Íslands er komin heim eftir frábæra tónleikaferð um Bretland. Hljómsveitin hélt alls sjö tónleika í jafnmörgum borgum í ferðinni og voru tónleikasalirnir með þeim helstu í Bretlandi.
Lesa meira
Staða píanóleikara laus til umsóknar
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu píanóleikara með skyldu á selestu og hljómborð.
Hæfnispróf fer fram 30. maí 2023 í Hörpu.
Lesa meira
Íslensku tónlistarverðlaunin
Íslensku tónlistarverðlaunin fara fram í kvöld en margir samverkamenn Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru tilnefndir í ár.
Lesa meira
Syngjandi hljómsveitarstjórinn Barbara Hannigan snýr aftur
Barbara Hannigan er væntanleg til Íslands á ný og heldur tvenna tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu í Reykjavík 15. júní og í Hofi á Akureyri 16. júní.
Á efnisskrá tónleikanna verða þrjú hrífandi tónverk þar sem ljóðræna og leikgleði Barböru Hannigan fá að njóta sín jafnt í söng og hljómsveitarstjórn.
Lesa meira

Staða leiðara í básúnudeild
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu leiðara í básúnudeild.
Hæfnispróf fer fram 10. maí 2023 í Hörpu.
Lesa meira
Laufey og Sinfó á Spotify
Komin er út ný plata með Laufeyju og Sinfóníuhljómsveit Íslands á Spotify. Platan ber heitið A Night At The Symphony og á henni eru 14 lög sem tekin voru upp á tónleikunum með hljómsveitinni í lok október undir stjórn Hough Brunt.
Lesa meira
Hljómborðsklukkuspil til minningar um Önnu Guðnýju píanóleikara afhent að gjöf
Í síðustu viku var Sinfóníuhljómsveit Íslands afhent hljómborðsklukkuspil að gjöf. Hljóðfærið er tileinkað minningu Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur píanóleikara sem lést 11. september 2022. Hljómborðsklukkuspil hefur hingað til ekki verið tiltækt á Íslandi og er mikill fengur að gjöfinni.
Lesa meira
Ævintýrið um töfraflautuna á skólatónleikum
Í vikunni heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands fimm skólatónleika og á von á allt að fjögurþúsund grunnskólanemum í heimsókn á miðvikudag, fimmtudag og föstudag í Eldborg. Á tónleikunum flytur hljómsveitin Ævintýrið um töfraflautuna eftir Mozart í styttri gerð en verkið er ein dáðasta ópera sögunnar.
Lesa meira
Hljómsveitin minnist Páls Pampichler Pálssonar
Páll Pampichler Pálsson hljómsveitarstjóri og tónskáld lést 10. febrúar sl. í fæðingarborg sinni Graz í Austurríki á 95. aldursári. Við erum einstaklega þakklát fyrir framlag Páls til Sinfóníuhljómsveitar Íslands og íslenskrar menningar.
Lesa meira
Samningur endurnýjaður við Evu Ollikainen aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur endurnýjað samning sinn við Evu Ollikainen sem gegnt hefur stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda síðastliðin þrjú ár. Samningurinn hefur verið framlengdur til loka starfsársins 2025-26.
Lesa meira