EN

2022 (Síða 2)

Fyrirsagnalisti

28. febrúar 2022 : FEAST á miðvikudag í beinni sjónvarpsútsendingu

Víkingur Heiðar Ólafsson frumflytur á Íslandi glænýjan píanókonsert Daníels Bjarnasonar í beinni sjónvarpsútsendingu frá Eldborg næstkomandi miðvikudagskvöld kl. 20. Konsertinn ber heitið FEAST og var frumfluttur í Walt Disney-tónleikahöllinni í Los Angeles þann 18. febrúar síðastliðinn.

14. febrúar 2022 : Herdís Anna og Gissur Páll á Vínartónleikum

Tveir helstu einsöngvarar Íslands koma fram á Vínartónleikum okkar í ár, þau Herdís Anna Jónasdóttir og Gissur Páll Gissurarson. Þau flytja aríur og dúetta úr óperettum eftir Strauss, Zeller og Kálman, auk þess sem margir skemmtilegir valsar og polkar eru á efnisskránni.

Vínartónleikar eru einir líflegustu og skemmtilegustu tónleikar ársins – fáðu þér sæti!

Lesa meira

8. febrúar 2022 : Skólatónleikunum Töfraflautan eftir Mozart aflýst

Sökum samfélagsaðstæðna var Sinfóníuhljómsveit Íslands ekki unnt að flytja Töfraflautuna eftir Mozart eins og til stóð vikuna 7.-12. febrúar. Skólatónleikum og fjölskyldutónleikum sem fyrirhugaðir voru í byrjun febrúar er frestað fram á næsta starfsár 2022-2023. Tónleikarnir verða auglýstir á vef hljómsveitarinnar þegar dagsetning liggur fyrir og þurfa kennarar og skólastjórnendur að endurbóka sína hópa á viðburðinn þegar þar að kemur.

Lesa meira

4. febrúar 2022 : Nýjar dagsetningar kynntar

Í byrjun janúar reyndist óhjákvæmilegt að fresta eða aflýsa tónleikum hljómsveitarinnar sem upphaflega voru á dagskrá í janúar og febrúar. Það gleður okkur að í ljósi nýjustu afléttinga á samkomutakmörkunum getur hljómsveitin nú haldið tónleikana Shostakotvisj og Barber 17. febrúar og Vínartónleika 24.-26. febrúar.

Fögnum saman nýju tónlistarári!

Lesa meira

26. janúar 2022 : Dagskrá næstu vikna hjá Sinfóníunni

Sinfóníuhljómsveit Íslands þurfti að fresta eða aflýsa fyrirhuguðum tónleikum sínum í janúar og febrúar vegna stöðu heimsfaraldursins.

Það gleður okkur þó að geta sagt frá því að hljómsveitin mun koma saman á ný og halda tvenna hádegistónleika á næstu vikum, Wagner og Mozart fimmtudaginn 3. febrúar og Mozart og Beethoven fimmtudaginn 10. febrúar.

Lesa meira

22. janúar 2022 : Laus staða mannauðsstjóra

Sinfóníuhljómsveit Íslands leitar að mannauðsstjóra. Við leitum að skipulögðum, drífandi og öflugum leiðtoga sem hefur góða reynslu og brennandi áhuga á fólki og mannauðsmálum. Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar nk.

Lesa meira

20. janúar 2022 : Tónleikum út febrúar aflýst eða frestað

Í ljósi mikillar útbreiðslu kórónuveirunnar og hertra samkomutakmarkana reynist óhjákvæmilegt að fresta eða aflýsa tónleikum og viðburðum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem ráðgerðir voru í janúar og febrúar. Nýjar dagsetningar fyrir þá tónleika sem frestað var verða kynntar á næstu dögum.

Lesa meira

20. janúar 2022 : Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2022 – viltu taka þátt?

Prufuspil fyrir þátttöku í Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2022 verða haldin í Hörpu mánudaginn 21. og þriðjudaginn 22. mars 2022. Umsókn um þátttöku í prufuspilinu er opin öllum tónlistarnemendum sem lokið hafa miðprófi.

Lesa meira

14. janúar 2022 : Tónleikum út febrúar aflýst eða frestað

Í ljósi mikillar útbreiðslu kórónuveirunnar og hertra samkomutakmarkana reynist óhjákvæmilegt að aflýsa eða fresta öllum tónleikum og viðburðum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem ráðgerðir voru í janúar og febrúar. 

Lesa meira

13. janúar 2022 : Valkyrju Wagners aflýst

Vegna heimsfaraldursins og afleiðinga hans reyndist óhjákvæmilegt að aflýsa fyrirhuguðum sýningum á Valkyrjunni eftir Wagner, uppfærslu Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Íslensku óperunnar í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík sem fara átti fram í Hörpu 24. og 26. febrúar 2022. 

Lesa meira