EN

2019 (Síða 2)

Fyrirsagnalisti

28. október 2019 : Á leið í tónleikaferð með Sinfóníuhljómsveit Íslands

Víkingur Heiðar Ólafsson leikur einleik í tónleikaferð hljómsveitarinnar til Þýskalands og Austurríkis í nóvember og hitar sveitin upp fyrir ferðina í Eldborg 7. og 8. nóvember. Meðal verka á efnisskránni er píanókonsertinn Processions eftir Daníel Bjarnason. Víkingur var tekinn tali í upphafi starfsársins þar sem hann ræddi tónleikaferðina, verkefnin framundan og hlutverk sitt sem staðarlistamaður hjá Konzerthaus í Berlín.

Lesa meira

27. október 2019 : Úrslit í einleikarakeppni Sinfóníunnar og LHÍ 2019

Helgina 25. og 26. október 2019 fór fram árleg einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands. Fjórir voru hlutskarpastir að þessu sinni. Það voruSólveig Vaka Eyþórsdóttir, fiðluleikari, Kristín Ýr Jónsdóttir, þverlfautuleikari, Flemming Viðar Valmundsson, harmóníkuleikari, og Gunnar Kristinn Óskarsson, trompetleikari. Þau munu koma fram ásamt á tónleikum Ungra einleikara 16. janúar 2020.

Lesa meira

20. október 2019 : Daníel semur verk fyrir aldarafmæli LA Phil

Fílharmóníuhljómsveit Los Angeles pantaði verk af Daníel Bjarnasyni, aðalgestastjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands, í tilefni af 100 ára afmæli Fílharmóníunnar. Verkið From Space I saw Earth er innblásið af upplifun geimfara af jörðinni úr fjarska og er hljómsvetinni skipt upp og þrír hljómsveitarstjórar stjórna flutningnum. Það eru Gustavo Dudamel, núverandi aðalhljómsveitarstjóri Fílharmoníusveitar Los Angeles, og tveir fyrrverandi aðalhljómsveitarstjórar hennar, Esa-Pekka Salonen og Zubin Mehta, sem stjórna flutningnum. Verkið verður frumflutt í Walt Disney Hall á afmælistónleikum hljómsveitarinnar 24. október næstkomandi.

Lesa meira

17. október 2019 : Senda inn tónverk til flutnings eða hljóðritunar

Sinfóníuhljómsveit Íslands tekur á móti nýjum og nýlegum íslenskum tónverkum til skoðunar vegna flutnings á tónleikum og/eða til hljóðritunar. Tónskáld sem vilja fá verk sín flutt af hljómsveitinni eru hvött til þess að senda inn rafræna umsókn hér á vef hljómsveitarinnar.

Lesa meira

16. október 2019 : Víkingur valinn listamaður ársins af Gramophone

Víkingur Heiðar Ólafsson var valinn listamaður ársins 2019 á Gramophone-verðlaununum í London í dag. Þetta eru stórtíðindi fyrir íslenskt tónlistarlíf en einungis fremstu tónlistarmenn heims hafa hlotið þessa viðurkenningu. Hljómsveitin leikur næst með Víkingi í Eldborg 7. og 8. nóvember áður en hún heldur í tónleikaferð með Víkingi og Daníel Bjarnasyni til Þýskalands og Austurríkis.

Lesa meira

14. október 2019 : Tvennir opnir hádegistónleikar

Sinfóníuhljómsveit Íslands býður upp á tvenna ókeypis hádegistónleika í Hörpu í október. Föstudaginn 18. október kl. 12 leika strengjaleikarar hljómsveitarinnar barokktónlist í Norðurljósum. Á seinni hádegistónleikunum fimmtudaginn 31. október kl. 11:45 flytur hljómsveitin verk eftir Tsjajkovskíj og Önnu Þorvaldsdóttur í Eldborg undir stjórn Daníels Bjarnasonar.

Lesa meira

13. október 2019 : Blásarasveit Sinfóníunnar á faraldsfæti

Blásarasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands ferðast um borg og bý í vikunni og heimsækir dvalarheimili og félagsmiðstöðvar víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu og leikur létta og skemmtilega dagskrá. Sveitin kemur víða við og heimsækir dvalarheimilin Fríðuhús, Sóltún, Þorrasel, Múlabæ, Maríuhús og Sunnuhlíð ásamt félagsmiðstöðvunum á Vitatorgi og í Mörkinni. Á ferð sinni um bæinn heimsækir sveitin einnig Hugarafl en hljómsveitin hefur átt í góðu samstarfi við félagið síðustu misseri og hlupu starfsmenn Sinfóníuhljómsveitar Íslands til styrktar Hugarafli í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst síðastliðnum.

Lesa meira

10. október 2019 : Beint streymi frá tónleikum

Beint myndstreymi var frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands fimmtudaginn 10. október. Á tónleikunum lék Stephen Hough píanókonsert nr. 2 eftir Brahms ásamt því að hljómsveitin flutti sinfóníu nr. 6 eftir Tsjajkovskíj undir stjórn Han-Na Chang.

Lesa meira
20191004Grenivikurskoli_SINFO

4. október 2019 : Nemendur um allt land horfðu á beint streymi frá skólatónleikum

Ríflega 2.000 nemendur frá 27 bæjarfélögum um land allt horfðu á beint streymi frá skólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í dag en í vikunni tók hljómsveitin einnig á móti um 6.000 nemendum á skólatónleikum í Hörpu.

Lesa meira

2. október 2019 : Sex þúsund nemendur á skólatónleikum í vikunni

Í þessari viku heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands sex skólatónleika í Hörpu og tekur á móti um 6.000 nemendum úr grunnskólum. Þá verða síðustu skólatónleikar vikunnar á föstudaginn kl. 11.00 teknir upp í mynd og streymt beint til skóla um allt land.

Lesa meira