Fréttasafn
2020 (Síða 4)
Fyrirsagnalisti

Streymi og heimsendingar
Á tímum samkomubanns býður hljómsveitin upp á reglulegar heimsendingar til landsmanna. Fimmtudagskvöld eru áfram Sinfóníukvöld og verður völdum tónleikum sjónvarpað á RÚV og hér á vef sveitarinnar. Vinsælar heimsendingar Sinfó á samfélagsmiðlum halda áfram og hljómsveitin tekur þátt í beinu streymi í samvinnu við Hörpu og Íslensku óperuna kl. 11:00 flesta morgna á meðan samkomubann varir.
Lesa meira
Daglegt streymi frá Hörpu
Harpa, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslenska óperan taka höndum saman og bjóða upp á lifandi tónlistarstreymi úr Eldborg kl. 11:00 flesta morgna á meðan samkomubann varir. Tónleikar vara í um 20–30 mínútur og verður streymt í beinni á YouTube-rás Hörpu og á menningarvef RÚV.
Lesa meira
Tilkynning vegna samkomubanns
Þar sem samkomubann hefur verið sett á mun Sinfóníuhljómsveit Íslands, eins og aðrar sviðslistastofnanir fresta eða aflýsa viðburðum. Athugið að miðahafar geta fært aðgöngumiða sína á aðra tónleika hljómsveitarinnar síðar á þessu starfsári, henti það ekki munum við endurgreiða aðgöngumiða í miðasölu Hörpu
Lesa meira
Vegna COVID-19 og mannamóta
Á meðan ekki er samkomubann í gildi á Íslandi er mikilvægt að gæta vel að smitvörnum á viðburðurðum. Almennt eigum við ekki að vera í mikilli nálægð við aðra þegar við finnum fyrir flensulíkum einkennum.
Nánari upplýsingar má nálgast með því að smella hér.
Lesa meira
Concurrence valin plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum
Nýjasta plata Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Concurrence, var valin plata ársins 2019 á Íslensku tónlistarverðlaununum í Hörpu. Concurrence er annar diskurinn af þremur sem bandaríska útgáfufyrirtækið Sono Luminus gefur út með hljómsveitinni og hefur hann fengið frábæra dóma m.a. í The New York Times, NPR, Second Inversion og Gramophone.
Lesa meira
Ljósmyndasýning úr 70 ára sögu hljómsveitarinnar
Í tilefni af afmæli hljómsveitarinnar er ljósmyndasýning á 1. hæð Hörpu. Þar gefur að líta fáeinar svipmyndir úr sjötíu ára sögu Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Galdrar tónlistarinnar verða aldrei fangaðir á ljósmynd, en þó getur góð mynd verið dýrmæt heimild um einstök augnablik, mikilvæga atburði og ógleymanlega listamenn.
Lesa meira
„Þú skalt bara leggja þetta fyrir þig, drengur minn"
Viðtal við básúnuleikarann Þórarinn Óskarsson sem lék á fyrstu tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 1950 í Austurbæjarbíói. Þórarinn er ern með eindæmum og kann enn sögur af starfinu fyrstu árin en hann lék einnig á básunu þegar rússneska tónskáldið Aram Katsjatúrían kom og stýrði hljómsveitinni í Þjóðleikhúsinu 1951.
Lesa meira
Sinfónían tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2019
Sinfóníuhljómsveit Íslands hlaut þrjár tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2019, sem flytjandi ársins, fyrir plötu ársins og tónlistarviðburð ársins. Verðlaunaafhendingin verður haldin í Hörpu miðvikudaginn 11. mars í beinni útsendingu á RÚV.
Lesa meira
Lausar stöður í hljómsveit
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu uppfærslumanns í víóludeild og stöðu sellóleikara frá og með ágúst 2020.
Lesa meira