EN

Upptökur frá tónleikum í hljóði og mynd

Sibelius & Beethoven 20. nóv. 19:30 Eldborg | Harpa

  • Efnisskrá

    Jean Sibelius Fiðlukonsert
    Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 3, Eroica

  • Hljómsveitarstjóri

    Tomáš Hanus

  • Einleikari

    Guido Sant‘Anna

Hlusta

Shostakovitsj & Prokofíev 13. nóv. 19:30 Eldborg | Harpa

  • Efnisskrá

    Samy Moussa Elysium
    Dmitríj Shostakovitsj Fiðlukonsert nr. 1
    Sergej Prokofíev Sinfónía nr. 6

  • Hljómsveitarstjóri

    Osmo Vänskä

  • Einleikari

    Liza Ferschtman

Hlusta

Mozart & Bruckner 30. okt. 19:30 Eldborg | Harpa

  • Efnisskrá

    Wolfgang Amadeus Mozart Fiðlukonsert nr. 5
    Anton Bruckner Sinfónía nr. 7

  • Hljómsveitarstjóri

    Eva Ollikainen

  • Einleikari

    Noah Bendix-Balgley

Hlusta

Nina Stemme & Stuart Skelton 23. okt. 19:30 Eldborg | Harpa

  • Efnisskrá

    Richard Wagner Forleikur að Die Meistersinger von Nürnberg
    Ígor Stravinskíj Sinfónía í þremur þáttum
    Richard Wagner Prelúdía að fyrsta þætti úr Tristan und Isolde
    Richard Wagner Tónlist úr 2. atriði úr öðrum þætti Tristan und Isolde

  • Hljómsveitarstjóri

    Pietari Inkinen

  • Einsöngvarar

    Nina Stemme
    Stuart Skelton
    Hanna Dóra Sturludóttir

Hlusta

Frönsk veisla 16. okt. 19:30 Eldborg | Harpa

  • Efnisskrá

    Louise Farrenc Forleikur nr. 1
    Gabriel Fauré Svíta úr Pelléas et Mélisande
    Maurice Ravel Tzigane
    Jean-Philippe Rameau Svíta úr Hippolyte et Aricie
    Wolfgang Amadeus Mozart Sinfónía nr. 31, Parísarsinfónían

  • Hljómsveitarstjóri og einleikari

    Malin Broman

Hlusta

Bartók & Ravel 9. okt. 19:30 Eldborg | Harpa

  • Efnisskrá

    Claude Debussy Forleikur að Síðdegi skógarpúkans
    Béla Bartók Píanókonsert nr. 3
    Witold Lutosławski Sinfónía nr. 4
    Maurice Ravel La valse

  • Hljómsveitarstjóri

    Dima Slobodeniouk

  • Einleikari

    Martin Helmchen

Horfa

Anna & Strauss 4. sep. 19:30 Eldborg | Harpa

Frumflutningur á nýjum sellókonserti eftir Önnu Þorvaldsdóttur telst stórviðburður í heimi samtímatónlistarinnar. Anna er eitt eftirsóttasta tónskáld dagsins í dag og verk hennar eru flutt reglulega af fremstu hljómsveitum heims. Sellóleikarinn Johannes Moser frumflytur verkið með Sinfóníuhljómsveit San Francisco og kemur í kjölfarið til Íslands. Moser er margverðlaunaður fyrir list sína og hefur komið fram sem einleikari með öllum helstu sinfóníuhljómsveitum austan hafs og vestan.

Skrif Richards Strauss fyrir hljómsveit eru einkar litrík og metnaðarfull. Fá tónskáld eru honum fremri í að nýta sér möguleikana sem búa í hljóðheimi sinfóníuhljómsveitar. Elektra er ein af þekktustu óperum Strauss og í þessari hljómsveitarsvítu úr verkinu birtist vel sá frumkraftur og dramatíska spenna sem upplifa má í sjálfri óperunni. Enn fremur hljómar í upphafi tónleikanna tónlist úr eina balletti Richards Strauss sem ber það óvenjulega heiti Schlagobers, eða „Þeyttur rjómi“. Efniviðurinn er heimsókn nokkurra barna í kræsilegt bakarí í Vínarborg þar sem sætabrauð og kökur vakna til lífsins – og þetta má greina í safaríkri tónlistinni.

Hlusta

Jólatónleikar Sinfóníunnar 17. des. 16:00 Eldborg | Harpa

  • Efnisskrá

    Gunnar Þórðarson Jólaforleikur
    Jón Sigurðsson Jólin alls staðar
    Jay Livingston og Ray Evans Jólasnjór
    Ingibjörg Þorbergs Hin fyrstu jól
    Meredith Willson Nú minnir svo ótal margt á jólin
    Joo-Hye Lee Christmas Fantasy
    Gunnar Þórðarson Óður til Jólanna
    Sigvaldi Kaldalóns Jólakvæði
    Franz Xaver Gruber Heims um ból

  • Hljómsveitarstjóri

    Ross Jamie Collins

  • Einsöngvarar

    Páll Óskar Hjálmtýsson
    Jóhanna Guðrún Jónsdóttir
    Kolbrún Völkudóttir

  • Kynnir

    Trúðurinn Barbara

  • Táknmálstúlkur

    Eva Rún Guðmundsdóttir

  • Gestir

    Stúlknakór Reykjavíkur
    Kammerkórinn Aurora
    Táknmálskórinn Litlu sprotarnir
    Dansarar úr Listdansskóla Íslands
    Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
    Ungir tónlistarnemendur

Horfa

Stuart Skelton syngur Wagner 25. feb. 20:00 - 21:00 Eldborg | Harpa

Horfa

Tsjajkovskíj og Shostakovitsj 11. okt. 19:30 Eldborg | Harpa

Japanska fiðlustjarnan Sayaka Shoji er Íslendingum að góðu kunn, en hún hefur tvívegis leikið á sumarhátíðinni Midsummer Music í Hörpu. Árið 1999 varð hún yngsti sigurvegari í sögu Paganini-keppninnar og þar með voru örlög hennar ráðin. Í dag ferðast hún um heiminn með Stradivarius-fiðluna sína og heillar áheyrendur hvert sem hún fer. Á þessum tónleikum leikur hún einn dáðasta fiðlukonsert allra tíma, þann sem Tsjajkovskíj samdi árið 1878 handa elskhuga sínum, fiðluleikaranum Josef Kutek. Ástríðuþrungnar hendingar í bland við stef sem minna á rússnesk þjóðlög gera konsertinn að ógleymanlegri upplifun.

Stjórnandi tónleikanna er hinn finnski Klaus Mäkelä, sem þrátt fyrir ungan aldur hefur sýnt að hann er einn eftirtektarverðasti hljómsveitarstjóri Norðurlanda um þessar mundir. Glitrandi forleikur Bernsteins að óperettunni Candide er viðeigandi upptaktur að tónleikunum enda er öld liðin frá fæðingu Bernsteins haustið 2018. Tíunda sinfónía Shostakovitsj er eitt hans vinsælasta verk enda hefur hún bæði að geyma ofsafengna dramatík og innilega ljóðrænu. Þetta var fyrsta sinfónían sem tónskáldið samdi eftir lát Stalíns vorið 1953 og margir heyra í verkinu uppgjör við þann örlagaríka tíma. Shostakovitsj á að hafa sagt að annar þátturinn væri „mynd af Stalín í tónum“, en hvað sem því líður er tónlistin einstaklega áhrifamikil. 

Horfa

LA / Reykjavík 5. okt. 19:30 Eldborg | Harpa

Horfa

Fyrstu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands

9. mars 1950

Hér má heyra hljóðritun frá fyrstu tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, með ávarpsorðum dr. Páls Ísólfssonar, sem haldnir voru í Austurbæjarbíói 9. mars árið 1950. Efnisskráin er svohljóðandi:

Tónleikarnir hefjast á ávarpi dr. Páls Ísólfssonar, þá er Þjóðsöngurinn leikinn og þá koma þessi verk: Beethoven: Egmont forleikurinn, Sjö rúmenskir þjóðdansar eftir Béla Bartók og Divertemento í b-dúr eftir Haydn fyrir flautu, óbó, klarinettu, fagott og horn.

Að lokum má heyra ófullgerðu sinfóníuna. Tekið skal fram að vegna höfundarréttar þá varð að sleppa verki Bartóks í þessu hlaðvarpi.

Stjórnandi á þessum fyrstu tónleikum var dr. Róbert A. Ottósson.

spila prufa.

Smelltu hér til að hlusta